Smári Valtýr Sæbjörnsson
70-80% aukning í sumar á Thai Keflavík
Það er bara alger sprenging, 70-80% aukning frá því í fyrra,
segir Magnús Heimisson eigandi Thai Keflavík veitingastaðarins við Hafnargötu í Keflavík í samtali við Víkurfréttir.
Magnús segir að ferðamenn séu stór hluti viðskiptavina sinna í sumar og aukningin í rekstrinum sé fyrst og fremst út af þeim.
Ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega mikið. Ég hef t.d. fengið marga hópa af Kínverjum. Þú rétt misstir af stórum hópi hérna áðan. Þá hef ég fengið marga hingað á veitingastaðinn frá hótelunum og gististöðunum á svæðinu. Þó svo að flestir ferðamannanna stoppi ekki lengi á Suðurnesjum er þó ljóst að þeir koma hingað. Ættu ekki allir bæir í grennd við alþjóðan flugvöll að njóta nærverunnar. Það hefði ég haldið,
sagði veitingamaðurinn við fréttamann VF í vikunni.
Aðspurður um hvað ferðamennirnir vildu borða sagði Magnús að flestir sem kæmu af hótelunum væru búnir að borða íslenskan mat í ferðinni og vildu því fá eitthvað annað áður en þeir færu heim.
Þeir spyrja bara hvar þeir geti fengið gott að borða. Þeir fá það hér,
sagði Magnús og hlær.
Greint frá á vef Víkurfrétta.
Mynd: skjáskot af google korti.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Áhugavert12 klukkustundir síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Markaðurinn4 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn5 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt3 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Markaðurinn2 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið




