Frétt
17% fækkun í júlí milli ára
Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 231 þúsund í júlímánuði eða um 47 þúsund færri en í júlí árið 2018. Fækkun milli ára nemur 17%.
Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5%, um 23,6% í maí og 16,7% í júní.
Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júlí eða 28,3% brottfara og fækkaði þeim um 36,2% milli ára.
Frá áramótum hefur um 1,1 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 13,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.
Fjölmennustu þjóðernin
Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í júlí tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru 19 þúsund talsins eða 7,9% færri en í júlí árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Frakka, um tólf þúsund talsins og fækkaði þeim um 3,9% milli ára.
Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Kínverja (4,9% af heild), Breta (4,9% af heild), Pólverja (4,4% af heild), Kanadamanna (4,1% af heild), Dana (3,2% af heild), Spánverja (3,0% af heild) og Svía (2,5% af heild).
Ferðir Íslendinga utan
Um 60 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí í ár eða 8,9% færri en í júlí 2018. Frá áramótum hafa um 367 þúsund Íslendingar farið utan eða 5,6% færri en á sama tímabili í fyrra.
*Nánari upplýsingar
Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess apð gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar hér.
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar er hægt að sjá á vef Ferðamálastofu hér.
Myndir: úr safni
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or10 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or14 klukkustundir síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Frétt5 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or19 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn7 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir









