Smári Valtýr Sæbjörnsson
114 herbergja hótel á Húsavík
Framkvæmdir við stækkun á Fosshótel Húsavík eru hafnar og áætlað er að þeim ljúki eftir áramótin 2016. Miklar breytingar standa til, en herbergjum á hótelinu fjölgar um 44 og verða 114 eftir stækkun.
Jafnframt verða þrír nýir fundarsalir í kjallara hótelsins ásamt veitingaaðstöðu. Þá mun móttaka taka miklum breytingum auk þess sem eldri herbergi verða endurbætt. Fosshótel hafa rekið hótel á Húsavík um árabil og hafa miklar endurbætur verið gerðar á hótelinu síðustu misseri.
Hótelið verður allt hið glæsilegasta, en mikill uppgangur hefur verið í ferðaþjónustu á Húsavík og nágrenni á undanförnum árum og því tímabært að fara af stað með þessa framkvæmd.
Fosshótel er keðja hótela hringinn í kring um landið og er hluti af Íslandshótelum. Fosshótelin eru í dag 10 talsins en mun fjölga um eitt næsta sumar þegar Fosshótel Reykjavík á Höfðatorgi opnar. Fosshótel Reykjavík verður stærsta hótel landsins, first class hótel með 320 herbergjum.
Tölvuteiknaðar myndir: aðsendar
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Markaðurinn6 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Áhugavert5 dagar síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Markaðurinn2 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Frétt6 dagar síðanVanilludropar Bónuss teknir úr sölu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu





