Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Opnaði matarvagn til að fjármagna kokkanám í Frakklandi – Námið kostar um 5,6 milljónir

Birting:

þann

Vefjuvagninn - Lárus Guðmundsson

Lárus Guðmundsson

Vefjuvagninn - Lárus GuðmundssonVefjuvagninn sem staðsettur er á Geirsgötu býður upp á girnilegan skyndibita frá klukkan 11:00 til 20:00. Á matseðlinum er Chili Con Carne, Lamba karrý, Grænmetisvefja og pönnukökur sem eru upprúllaðar með sykri eins og amma gerir, mmmm… girnilegt er það. Matseðilinn er hægt að skoða með því að pdf_icon smella hér.

Vefjuvagninn er hugarfórstur Lárusar Guðmundssonar oftast kallaður Lalli, en hann hefur langa reynslu af matargerð þrátt fyrir ungan aldur. Lalli hóf störf 16 ára gamall á suZushii og vann þar í 3 ár. 1 ár á Hótel Holti og var svo yfir eldhúsinu á Kjöt Kompaníinu.

Paul Bocuse

Paul Bocuse.
Mynd: bocusedor.com

Lalli ætlar nú að láta langþráðan draum rætast og fara í kokkanám í einn virtasta skóla Frakklands, þ.e. hjá engum öðrum en Paul Bocuse, en skólinn heitir einfaldlega Institut Paul Bocuse. Paul Bocuse er upphafsmaður Bocuse d´Or keppninnar sem margir hverjir þekkja.

Vefjuvagninn er hugsaður sem fjáröflun svo þessi draumur hjá Lalla geti orðið að veruleika.

Veitingageirinn.is forvitnaðist aðeins meira um Lárus og hans áhuga á kokkanáminu og fengum hann til að svara nokkrum spurningum:

Hvað er námið langt?
Námið er þrjú ár í Paul Bocuse institute de culinary skólanum þar á meðal 4-6 mánuðir í skiptinámi og því lýkur með BA prófi í matreiðslulist og veitingahúsastjórnun „Bachelor’s Degree in Culinary Arts and Restaurant Management“.

Vefjuvagninn - Lárus Guðmundsson

Vefjuvagninn er staðsettur á Geirsgötu í Reykjavík

Hvað kostar námið?
Námið sjálft kostar um 5,6 milljónir en svo á eftir að bætast við dvalarkostnaður.

Hefur þú hug á því seinna meir að fara í kokkanám hér á Íslandi, þ.e. í Hótel og matvælaskólann í Kópavoginum?
Mig langar mest í nám erlendis en auðvitað veit maður ekki hvað framtíðin ber í skauti sér varðandi kokkanám hér heima.

Vefjuvagninn - Lárus Guðmundsson

Chili Con Carne vefjan með krydduðum hrísgrjónum, salati og sýrður rjómi toppaður með kóríander

Hvenær fékkstu áhuga og hvað var það sem kveikti í þér að fara í Paul Bocuse skólann?
Það sem kveikti áhuga minn fyrir alvöru á þessum skóla var ótrúleg tilviljun. Ég sat á einum af veitingastöðum Paul Bocuse í Lyon. Á borðinu við hliðina á mér sest vingjarnlegur maður, sem var sífellt að svara í símann. Þegar hann var að leggja frá sér tólið í líklegast níunda sinn, ávarpar hann mig og afsakar ónæðið sem hafði hlotist af þessu.

Út frá því förum við að spjalla saman og þá kom í ljós að hann er gæðastjóri yfir öllum veitingastöðum Paul Bocuse. Eftir stutt samtal við hann fann hann greinilega hversu mikinn áhuga ég hef á matargerð og hvatti mig eindregið til að sækja um skólann.

Í lokinn bauðst hann til að panta fyrir mig VIP kvöldverð á einum af veitingastöðunum sem hann hafði umsjón með. Það var einstök upplifun og mér leið eins og ég hefði verið staddur í einhverju ævintýri því ég fór til Frakklands með hugmyndir um framtíðina en kom til baka með plan ég verð að komast í þennann skóla hvað sem það kostar.

Sagði Lárus að lokum og hvetjum alla að heimsækja Vefjuvagninn og fylgjast með á facebook síðunni hér.

 

Myndir: af facebook síðu Vefjuvagnsins.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið