Freisting
Þrastalundur seldur
Garðar Kjartansson eigandi skemmtistaðarins Nasa við Austurvöll og Fjölnir Þorgeirsson hafa fest kaup á Þrastalundi.
Þau hjónin Snorri Sigurfinnsson og Sigrún Ólafsdóttir eru rekstaraðilar Þrastalundar og hafa verið það í 2 ár eða síðan húsið var endurreist 12. júní 2004. Um er að ræða 400 fm. veitingastað og kemur húsið í stað eldra húsnæðis sem var orðið 40 ára gamalt. Framkvæmdir við nýja Þrastalund hófust í nóvember 2003 þannig að verkið gekk mjög vel fyrir sig, en þau hjónin seldu reksturinn í Þrastalundi að undangengnum samningaviðræðum við þá Garðar Kjartansson eigandi Nasa við Austurvöll og Fjölni Þorgeirssyni. En samkvæmt Suðurlandsfréttum þá taka þeir við rekstrinum í Þrastalundi um áramótin. UMFÍ er eigandi hússins og hefur félagið samþykkt yfirtökuna á þeim formerkjum sem leigusamningurinn sem er nú í gildi.
Snorri ætlar sér fljótlega að líta eftir nýju starfi, þar sem reksturinn að Þrastalundi hefur verið krefjandi og skemmtilegt starf þá útilokar hann ekki að halda áfram í veitingarekstri.
Auðunn Valsson
[email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn1 dagur síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju



