Smári Valtýr Sæbjörnsson
Tegundasvik viðgangast
Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að 30% sýna sem starfsmenn MATÍS tóku á tíu veitingastöðum í Reykjavík sýndu að ekki var um þá fisktegund að ræða sem pöntuð hafði verið af matseðli.
Í rannsókninni fóru starfsmenn MATÍS á veitingastaðina, pöntuðu fisk og tóku úr honum sýni sem svo voru erfðagreind.
Jónas R. Viðarsson, fagstjóri hjá MATÍS, segir að sambærilegar rannsóknir hafi verið gerðar erlendis sem sýnt hafi svipaða niðurstöðu um tegundasvik.
„Við tókum 27 sýni af 10 veitingastöðum og þar af voru átta sem ekki voru af þeirri tegund sem þær áttu að vera. Það bendir til þess að tegundasvindlið sé svipað hér og víða annars staðar,“
segir Jónas, en nánar um rannsóknina er hægt að lesa í Morgunblaðinu í dag.
Mynd: úr safni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn5 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn5 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna
-
Keppni6 dagar síðanStyttist í stóru stundina hjá Kokkalandsliði Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndir: Glæsilegt kampavínsboð á Apótekinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞráinn Freyr tók á móti matreiðslumeisturum
-
Markaðurinn3 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels



