Markaðurinn
Sjáumst á Stóreldhúsasýningunni
Sýningin Stóreldhúsið fer fram í Laugardalshöll dagana 31. október og 1. nóvember og verður Mjólkursamsalan að sjálfsögðu á staðnum með veglegan kynningarbás. Fjölbreytt vöruúrval verður kynnt fyrir gestum og gangandi en fyrirtækið býður upp á fjöldann allan af ferskum, íslenskum mjólkurvörum fyrir stóreldhúsið og fást þær í mismunandi eininga- og umbúðastærðum sem henta eldhúsum af öllum stærðum og gerðum.
MS er með frábæran hóp sölufulltrúa sem sérhæfir sig í þjónustu við veitingahús, mötuneyti, hótel og önnur stóreldhús um land allt. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vöruþróun og kynnir fyrirtækið um 20-30 nýjungar árlega, bæði fyrir almenna neytendur sem og stórnotendur en á vefsíðu okkar ms.is er yfirlit yfir allar vörur sem og vörumerkjasíður sem áhugasamir geta kynnt sér frekar.
Við bjóðum upp á sérstakan þjónustuvef fyrir viðskiptavini okkar, panta.ms.is, en þar geta viðskiptavinir meðal annars pantað vörur, fengið upplýsingar um dreifileiðir, skoðað pantanir í vinnslu, sem og sölugreiningu og komið ábendingum á framfæri svo eitthvað sé nefnt.
Vefurinn er einfaldur og sérstaklega þægilegur í notkun og er bæði hægt að fá upplýsingar um vefinn í gegnum síma og eins með sýnikennslu þar sem sölumaður MS kemur í heimsókn til viðskiptavina og fer yfir einfalt ferlið. Þessi sýnikennsla er að sjálfsögðu gjaldfrjáls og hluti af persónulegri þjónustu sem MS býður upp á.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Stóreldhússýningunni en opnunartími sýningarinnar er frá kl. 12-18, 31. október og 1. nóvember.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Keppni1 dagur síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn




