Freisting
Pressa að fá gullið

T.v. Bjarni Gunnar Kristinsson, Grillið RadissonSAS Hótel Saga, Þórarinn Eggertsson, Orange, Eyþór Rúnarsson, Veitingastaðurinn Ó, Karl Viggó Vigfússon, GV Heildverslun, Gunnar Karl Gíslason, Vox Hilton Nordica, Hrefna Rós Jóhannsdóttir, Sætran Fiskmarkaðurinn, Örvar Birgisson, Nýja Kökuhúsið
Íslenska kokkalandsliðið er á leið á Ólympíuleika matreiðslumeistara. Erfið keppni er fram undan. Við fengum silfur síðast þegar við fórum og brons þarsíðast, svo nú er pressan að fá gullið,“ segir Ragnar Ómarsson, þjálfari kokkalandsliðsins, sem heldur út á Ólympíuleika matreiðslumeistara næstkomandi föstudag.
Leikarnir fara fram í Erfurt í Þýskalandi dagana 20. til 24. október og eru ávallt haldnir sama ár og Ólympíuleikar í íþróttum fara fram.
Við byrjum á því að keppa í Restaurant of nations“ þar sem öll keppnislöndin elda þriggja rétta hádegisverð fyrir 110 manns. Við fáum fimm klukkutíma til að undirbúa okkur áður en staðurinn er opnaður og fólk kemur inn til að velja sér hjá hvaða landi það vill borða,“ útskýrir Alferð Ómar Alfreðsson matreiðslumeistari sem var að ljúka við síðustu æfingu liðsins þegar blaðamaður náði tali af honum, en landsliðið samanstendur af níu afburða matreiðslumeisturum. Við erum meðal sex til átta sterkustu þjóða heims og það hefur alltaf verið uppselt hjá okkur í keppninni,“ bætir Ragnar við. Fólk greiðir um 3.500 krónur íslenskar fyrir hádegisverðinn, en 90 prósent af hagnaðinum rennur til liðsins og tíu prósent fara í þjónustuna.
Tveimur dögum síðar er næsti liður á leikunum sem kallast kalda borðið“ og krefst mikils undirbúnings. Á kalda borðinu er konfekt, fiskmeti og pinnamatur, en borðið sjálft er hannað í samstarfi við Marel. Undirbúningurinn tekur tvo sólarhringa svo það er oft aðeins sofið í fimm tíma á þessum fjórum sólarhringum sem keppnin stendur yfir,“ segir Alfreð að lokum, vongóður um frammistöðu liðsins í Erfurt.
Það var Alma hjá Fréttablaðinu sem tók saman þennann pistil.
Mynd; fréttablaðið/gva | [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt4 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn1 dagur síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg



