Markaðurinn
Nýtt vörumerki hjá Nathan: Arco
Við hjá Nathan erum spennt að tilkynna að við höfum hafið sölu á nýjum og spennandi vörum frá ítalska matvælarisanum Gruppo DAC, sem er hluti af hinni alþjóðlegu Bidcorp samsteypu. Um er að ræða glæsilegt vöruúrval á mjög hagstæðum verðum, meðal annars undir vörumerkinu Arco, sem fanga kjarnann í ekta ítalskri matargerð.
Arco er eitt helsta og elsta vörumerki Gruppo DAC. Vörulínan samanstendur af hágæða hráefnum sem eru ómissandi í öll eldhús og inniheldur allt það helsta úr ítalskri matarhefð. Vörurnar frá Arco eru sérstaklega þróaðar fyrir fagfólk í veitingageiranum sem gerir ríkar kröfur um framúrskarnadi gæði, stöðugleika og gott verð.
Gruppo DAC á sér langa og farsæla sögu en fyrirtækið var stofnað árið 1972 í bænum Flero á Ítalíu. Ástríða fyrir gæðahráefnum hefur drifið fyrirtækið áfram í yfir 50 ár og í dag er DAC einn stærsti dreifingaraðilinn á matvælum til veitingageirans á Ítalíu, ásamt útflutningi til fjölmargra landa. Vörulistinn þeirra telur yfir 25 þúsund vörutegundir sem sýnir vel þá breidd og sérfræðiþekkingu sem býr í fyrirtækinu.
Árið 2014 varð Grupp DAC hluti af Bidcorp (Bidfood) sem er ein stærsta samsteypa í heimi í dreifingu á matvælum, með starfsemi í 35 löndum. Þessi alþjóðlega tenging tryggir aðgengi að nýjum mörkuðum og vörum ásamt því að lögð er áhersla á gæðastaðla, sjálfbærni, stöðugar umbætur ásamt rekjanleika vara.
Við erum virkilega stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessar frábæru ítölsku vörur og hlökkum til að sjá þær gera góðan mat enn betri í ykkar eldhúsum. Við stefnum á að auka stöðugt við úrvalið af vörum frá Gruppo DAC. Það má því búast við að fleiri spennandi gæðavörur bætist í vefverslun okkar á næstunni.
Hægt er að kynna sér vöruúrvalið sem komið er í birgðir hér.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt2 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Frétt4 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn6 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum



