Pistlar
Níels hættir eftir 29 ára formennsku
Níels Sigurður Olgeirsson matreiðslumeistari og formaður Matvís hefur ákveðið að hætta sem formaður á aðalfundi félagsins 14. mars næstkomandi.
Framboðsfrestur er 7 dagar fyrir aðalfund, en listi stjórnar og trúnaðarráðs er komin á heimasíðu félagsins og þar er Óskar Hafnfjörð Gunnarsson settur sem formannsefni.
Við látum Níels fá orðið:
Kæru félagsmenn MATVÍS
Nú er að koma að aðalfundi félagsins sem verður 14. mars á Stórhöfða 31. Þar kjósum við forustu félagsins til næstu ára.
Ég var kosinn formaður Félags matreiðslumanna 1989 og svo formaður MATVÍS frá stofnun 1996. Þannig að það er komið að því að víkja og láta aðra um að standa vaktina eftir 29 ára formennsku.
Ég hef tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á mér sem formaður MATVÍS á næsta aðalfundi félagsins. Ég þakka fyrir þann mikla stuðning og það traust sem ég hef haft til þess að gegna þessu starfi. Þetta hafa verið krefjandi 29 ár og með ólíkindum hvað verkefnin hafa alltaf verið gefandi og flest hver skemmtileg. Fjölbreytileiki verkefna hefur komið mér á óvart og að það skuli alltaf koma upp nýjar áskoranir til að vinna úr. Starfið hefur að miklu leiti falist í að verja það sem forverar okkar náðu að semja um og standa vörð um að menntun greinanna verði ekki eyðilögð. Það hafa verið mikil átök og oft á tíðum hafa þau verið persónugerð þrátt fyrir samhljóma bakland. Að sjálfsögðu skiptast á skin og skúrir.
Eftir að við stofnuðum MATVÍS hefur okkur gengið nokkuð vel að bæta kjör okkar félagsmanna og stöndum núna á svipuðum stað og önnur iðnaðarmanna félög.
Ég hef verið að undirbúa mig undir starflok undanfarin ár með því að minnka starfhlutfallið hjá mér í 80%.
Ég hafði ætlað mér að gefa kost á mér í tvö ár í viðbót en við nánari skoðun fannst mér það full langur tími. Svo ég taldi rétt að hætta núna sem formaður og klára ýmis verkefni sem eru í gangi hjá mér fyrir félagið og ljúka störfum um næstu áramót.
Kosningar til trúnaðarstarfa fyrir félagið fara fram á aðalfundi félagsins núna 14. mars.
Þegar ég læt af störfum fyrir félagið þá mun ég alfarið helga mér minni Paradís í Hörðudal Vestur í Dölum. Þar fellur alltaf eitthvað til svo ekki þarf ég að kvíða iðjuleysi.
Níels Sigurður Olgeirsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?



