Eldlinan
Friðrik V lifi!
Um daginn varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að snæða kvöldverð á veitingahúsinu Friðriki V á Akureyri. Ég ferðast nokkuð víða og borða oft á góðum veitingastöðum, en það er ánægjulegt að geta sagt frá því að máltíðin á Friðrik V var sú besta sem ég hef fengið lengi, innanlands og erlendis.
Ef Michelin gæfi stjörnur á Íslandi væri þessi staður alls ekki ólíklegur til að fá tvær. (Hjá Michelin þýðir ein stjarna að maður eigi að heimsækja staðinn ef maður á leið framhjá; tvær að maður eigi að leggja lykkju á leið sína til að snæða þar, en þrjár að maður eigi að gera sér sérstaka ferð. Aðeins albestu veitingastaðir fá eina stjörnu, hvað þá fleiri.)
Ekki spillir fyrir að kokkurinn Friðrik Valur ber sjálfur réttina á borðið ásamt konu sinni Arnrúnu, og gestir eru leiddir í allan sannleika um uppruna hráefnisins, sem í nær öllum tilvikum er úr Eyjafirði og nærsveitum. Koma þar fram nöfn bænda og búaliðs og margt er þar athyglisvert um einstaklingsframtak og metnað til að framleiða gæðavöru sem skeri sig úr, hvort sem um var að ræða kjöt, grænmeti, bjór eða ísinn í eftirréttinum.
Mér varð hugsað til Draumalandsins hans Andra Snæs og umræðu hans um landbúnaðinn og hversu erfiðlega hefur gengið að breyta honum úr sovétkommúnískri meðalmennskudýrkandi fátæktargildru, í opið markaðskerfi framtaks, nýsköpunar, markaðssóknar og fjölflóru. Ef marka má máltíðina á Friðriki V, er alls engu að kvíða fyrir íslenska bændur, þótt þeim verði hleypt út á frjálsan markað eins og beljum að vori.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn5 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax


