Freisting
Brátt hægt að kaup beint af bændum
Félag um heimvinnslu landbúnaðarafurða verður stofnað í lok mánaðarins. Stefnt er að því að ferðamenn geti valið úr miklu úrvali landbúnaðarafurða sem hægt verði að kaupa beint frá bændum um allt land.
Töluverð eftirspurn er eftir matvælum sem fullunin eru á búunum og margir Íslendingar þekkja það frá ferðum erlendis að kaupa unnar kjötvörur, osta, drykkjarvörur og ýmis fleiri matvæli beint af hlutaðeigandi bónda. Samkvæmt niðurstöðum stýrihóps um heimavinnslu er mikill áhugi á því hjá bændum að efla heimavinnslu afurða en nokkrir bændur hafa þegar gert tilraunir með að selja ferðamönnum afurðir beint af búum sínum.
Bændasamtökin og Félag ferðaþjónustubænda skipuðu stýrihópinn í fyrra til að finna út leiðir til að efla heimavinnslu landbúnaðarafurða og hvetja bændur til að taka þátt í því verkefni sem hefur fengið heitið „Beint frá býli“. Nú þegar eru nokkrir bændur byrjaðir að selja beint af búum sínum.
Má þar. m.a. nefna Vogafjós í Mývatnssveit, sem framleiðir osta, og Njálunaut á Suðurlandi sem selur unnið nautakjöt. Þá kemur fram í skýrslu stýrihópsins að stórir matvælaframleiðendur séu hlynntir verkefninu enda er reynslan, m.a. frá Noregi, sú að heimavinnsla er ekki í mikilli samkeppni við stóru framleiðendurnar heldur miklu fremur viðbót við markaðinn.
Næsta skref verður stofnun félags bænda í heimavinnslu og verður stofnfundurinn 29. febrúar á Möðrudal á fjöllum. Markmiðið er síðan að félagið standi næstu þrjú ár að átaksverkefni til að efla heimavinnslu afurða.
Greint frá á Ruv.is
-
Íslandsmót barþjóna4 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Frétt4 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Markaðurinn4 dagar síðanPistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni



