Freisting
Bændur bjóða í grillveislu

Í tengslum við matreiðsluþættina „Eldum íslenskt“, sem sýndir eru á ÍNN og mbl.is, ætla bændur að heilgrilla naut, svín og lambaskrokka á næstu dögum fyrir utan verslanir Krónunnar í Reykjavík og Kópavogi.
Kokkarnir úr þáttunum gefa góð ráð um leið og þeir gefa fólki að bragða á kjötinu. Fimmtudaginn 9. júlí verður riðið á vaðið í Krónunni á Granda kl. 16:00 en þar verður heill nautaskrokkur grillaður á landsfrægu grilli kúabænda.
Eftir viku verða nokkrir grísir steiktir á teini í Krónunni í Lindum í Kópavogi og síðar nokkrir lambaskrokkar á sama stað. Ef veðurguðirnir reynast viðskotaillir verður dagsetningum hugsanlega hnikað. Hægt er að fylgjast með á bondi.is. Kynningin er unnin í samstarfi Krónunnar, Svínaræktarfélags Íslands, Landssambands kúabænda, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtakanna, ÍNN, mbl.is og matreiðslumanna í „Eldum íslenskt“.
Grillað verður á eftirtöldum stöðum:
– Fimmtudagurinn 9. júlí – Krónan á Granda kl. 16:00. Heilgrillað naut.
– Fimmtudagurinn 16. júlí – Krónan í Lindum kl. 16:00. Heilgrillaðir grísir.
– Föstudagurinn 17. júlí – Krónan í Lindum kl. 16:00. Heilgrillaðir lambaskrokkar.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag



