Vertu memm

Starfsmannavelta

Valli flatbaka ekki lengur Valli flatbaka

Birting:

þann

Valli flatbaka ekki lengur Valli flatbaka

Páll Ágúst, Valli flatbaka og Hafþór Rúnar

Valgeir Gunnlaugsson betur þekktur sem Valli flatbaka hefur selt pizzastaðinn Íslensku Flatbökuna. Nýir eigendur munu taka við rekstrinum núna í lok mars en það eru athafna- og veitingamennirnir Páll Ágúst og Hafþór Rúnar.

Þeir eru nú ekki ókunnugir pizzabransanum en saman reka þeir pizza matarvagninn PopUp Pizza sem hefur verið að gera góða hluti í matarvagna menningunni.

Valli stofnaði Íslensku Flatbökuna í febrúar árið 2015 og fagnaði því 8 ára starfsafmæli nú á dögunum. Ásamt því að hafa rekið flatbökuna þá er Valli einn af eigendum Indican ásamt Páli óskari sem steig sín fyrstu skref í veitingarbransann nú á dögunum.

Sjá einnig: Páll Óskar opnar veitingastað

Aðspurður sagði Valli að ástæða sölunnar væri;

“Flatbakan er barnið mitt sem ég hef nært og gefið alla mína athygli og orku síðastliðin 8 ár.  Það hefur gengið vel og ég er virkilega þakklátur fyrir það. En uppá síðkastið hef ég þurft að sinna hinu barninu mínu sem er indican og öll mín orka og athygli fer í það núna ásamt öðrum verkefnum.

Mér fannst því vera kominn tími á að rétta flatböku kyndilinn áfram. Mér þykir virkilega vænt um Flatbökuna og því skipti það mig miklu máli að kyndillinn færi áfram í réttar hendur. Ég er búinn að þekkja Pál í mörg ár, hann vann fyrir mig á flatbökunni á sínum tíma og hefur verið spenntur í langan tíma að koma að rekstri flatbökunnar.

Ég er sannfærður að Páll og Hafþór muni koma sterkir inn og halda áfram því góða starfi sem ég og mitt frábæra starfsfólk höfum gert hingað til.”

Verða einhverjar breytingar með eigendaskiptunum ?

“Það verða auðvitað einhverjar áherslu breytingar sem fylgja nýjum eigendum og allar af því góða. Páll og Hafþór ætla sér að byggja áfram á traustum grunni. Ég myndi aldrei láta Flatbökuna frá mér nema vita að hún væri í góðum og traustum höndum.”

Valli flatbaka ekki lengur Valli flatbaka

Valli: „Ég held ég heiti Valli flatbaka í símaskránni hjá 80% af fólki sem ég þekki.“

Hvernig er tilfinningin að vera ekki lengur Valli flatbaka ?

“Ég held ég heiti Valli flatbaka í símaskránni hjá 80% af fólki sem ég þekki. Auðvitað er þetta skrítin tilfinning. Þetta er nú ekki mikil breyting, Valli flatbaka breytist í Valli indican og í staðinn kemur Palli flatbaka”

Segir Valli léttur í lund.

Valli er samt ekki alveg búinn að leggja pizzaspaðann á hilluna en hann ætlar að standa síðustu vaktina á Flatbökunni sunnudaginn 19. mars.

„já ég ætla sjálfur að standa síðustu vaktina. Mig langar að kveðja með stæl og ætla að bjóða allar pizzur á 2500 kr og láta 500 kr af hverri seldri pizzu renna til góðgerðamála.

Ég vonast til að sjá sem flesta af okkar æðislegu viðskiptavinum sem hafa verslað við okkur síðustu ár. Ég lofa að gráta ekki of mikið ofaní pizzurnar ykkar.”

Sagði Valli að lokum.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið