Markaðurinn
Bocuse d´Or og Innnes undirrita samstarfssamning
Bocuse D´or Akademían og Innnes ehf undirituðu samstarfssamning í dag þess efnis að Innnes verði bakhjarl Bocuse D´or Akademíunar framyfir lokakeppni í Lyon í Frakklandi á næsta ári.
Markmið samningsins er að styrkja Sigurjón Braga Geirsson sem keppa mun fyrir Íslands hönd.
Það voru Magnús Óli Ólafsson forstjóri Innnes, Friðgeir Eiríksson og Viktor Örn Andrésson frá Bocuse D´or Akademíunni sem undirrituðu samninginn.
Með undirritun samningsins er Innnes stoltur bakhjarl Bocuse D´or Akademíunar en Ísland hefur náð góðum árangri í keppninni undanfarin ár
Vonumst við hjá Innnes til þess að með stuðningi okkar leggjum við á okkar vogarskálar um að svo verði áfram.
Ísland hefur lengi haft á að skipa framúrskarandi matreiðslumönnum og konum sem eru landi og þjóð til sóma og náð hafa góðum árangri á erlendri grundu.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Frétt6 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Keppni2 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn6 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Frétt5 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn5 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði



