Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Höfði Mathöll opnar í desember
Eigendur matsölustaðarins Culiacan leita nú að áhugasömu veitingafólki sem væri til í að opna með þeim mathöll á Bíldshöfða í desember næstkomandi.
Ljóst er að mikil gróska er í mathallarflóru borgarinnar. Tvær mathallir eru nú þegar starfræktar, á Hlemmi og úti á Granda, auk þess sem til stendur að opna mathöll í Kringlunni í upphafi næsta árs.
Sólveig Guðmundsdóttir, annar eiganda Culiacan, segist því gera sér grein fyrir að þær Steingerður Þorgilsdóttir séu ekki að finna upp hjólið í þessum efnum. Engu að síður hafi þetta fyrirkomulag gefið góða raun úti á Granda og á Hlemmi, rétt eins og úti í hinum stóra heimi. Fátt sé því til fyrirstöðu að mathöll plummi sig einnig á Bíldshöfða; þar sé lifandi atvinnustarfsemi og stutt í fjölmenn íbúðahverfi, að því er framkemur á visir.is sem fjalla nánar um Mathöllina hér.
Við opnum Mathöll á Bíldshöfða í desember. Auglýsum eftir áhugasömum rekstraraðilum. Í boði eru 8-30 fermetra básar til…
Posted by Höfði Mathöll on Saturday, 6 October 2018
Mynd: aðsend
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir
-
Starfsmannavelta16 klukkustundir síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn5 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




