Vertu memm

Uncategorized

Alba er yngsti keppandinn

Birting:

þann

Samu frá Finnlandi, Alba og Tanio frá Bulgaria
Samu frá Finnlandi, Alba og Tanio frá Bulgaria

Allir eru komnir út úr verklegu prófinu. Og við misstum af Ölbu. Það er skömm frá því að segja, en við fengum rangar upplýsingar. Eins og svo oft áður hér, en það er ansi erfitt að átta sig á í hvora átt þær eru rangar.

Núna var það að Alba átti að vera 28. í prófið – hún var nr. 21. Hver keppandi átti að vera inni 30 til 40 mínutur – það tók hvern 10 mínútur!!

Þannig að við Sævar mældum okkur mót kl. 16°° til að fara til hennar … en þá var hún komin með bjór í hendi á barinn, sem er samastað allra (þeirra skemmtilegu alla vega) í kringum keppnina.

  • Munurinn á ooloong te frá Kína eða Taiwan?
  • Sýslur og héruð í Svíss?
  • Enska heiti á þeim manni sem er fyrir sake, það sem sommelier er fyrir vín?
  • Hvað var fyrsta rauðvínið sem var framleitt í Japan af portúgölskum trúboðum?
  • Nefna 3 fatty acids í kakómassa?
  • Hvaða franskur sommelier hefur skrifað bókina “Le vin et els vins au restaurant” (og fleiri bækur á frönsku)?
  • Hvað er sameiginlegt með Côteaux d’Aix og Sambucca í Sikiley?
  • Hvaða eyjar út af Portúgal mega bera IPR appellation?
  • Hefði einhver þekkt Viognier frá Grikklandi í blindsmökkun?

Það er fátt af því sem keppendur þurftu að glíma við, og fyrstu fréttirnar herma að af 200 stigum mögulegum voru 3 sem náðu 120 eða nálægt því… Hinir flestir standa í 30-40.
Það voru alls 45 keppendur sem mættu – og Georgíu keppandinn svaf ekki yfir sig, hann fékk hjartaáfall í Moskvu á leiðinni til Rhodos… Fyrsta skipti sem þau tóku þátt. Það verður að segja að margir voru úrvinda, af erfiðinni og biðinni. En andinn er mjög góður og mikið er skrafað og borið saman og skálað.

Alba hefur staðið sig vel, hún er ánægð með sína þáttöku – hún hefur líka tímann fyrir sig því hún er ekki nema 24 ára og yngsti keppandinn á eftir henni er um þritugt. Þetta  er ómetanleg reynsla sem hún ætlar að byggja vel á. Og efnið er til staðar !

Á morgun er enn keppt, Peter Lehmann og Shiraz keppni og keppni um vatn (já), svo er það úrslitin og allir biða að sjálfsögðu mjög spenntir, vægast sagt. Það er talað um keppnisvana menn í úrslitum, og nöfnin sem eru nefnd manna á milli eru Gérard Basset franski englendingurinn sem hefur tekið þátt í 12 ár, Eric Zwiebel frá Frakklandi, Andreas Larsson Svíinn sem lokar sig alveg af, Paolo Basso svisslendingurinn, Véronique Revest frá Canada, sem væri fyrstra konan í úrslitum – eða einhver outsider??

Svarið á morgun, í beinni á Freisting.is !

Smellið hér til að skoða myndir frá ferðalaginu (Slóð: Vínheimurinn / HM Sommelier 07)

Dominique í Rhodos

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið