Freisting
Lögreglan lokar Strawberries

Dómsmálaráðherra hefur að sögn Þórunnar Hafstein, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, staðfest ákvörðun lögreglustjóra að loka staðnum Strawberries við Lækjargötu.
Ákvörðun ráðuneytisins byggir meðal annars á því að á Strawberries hafi farið fram starfsemi sem ekki rúmaðist innan starfsleyfis staðarins, þar á meðal nektardans í atvinnuskyni.
Staðurinn var með kráarleyfi samkvæmt eldri lögum um veitingastaði en í ákvörðun ráðherra felst ekki svipting kráarleyfis. Lögregla lokaði staðnum fyrir mánuði vegna nektardanssýninganna. Eigendur staðarins kærðu lokunina til dómsmálaráðherra sem staðfesti á föstudag ákvörðun lögreglu.
Greint frá á Ruv.is
-
Keppni6 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Keppni6 dagar síðanFréttavaktin: Fylgstu með Kokkalandsliðinu á HM
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni3 dagar síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Keppni1 dagur síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM
-
Keppni3 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni4 dagar síðanStór stund fram undan hjá íslenskum barþjónum
-
Frétt5 dagar síðanÍslendingur leiðir áframhaldandi samstarf Alþjóðasamtaka matreiðslumanna


