Uncategorized
Rosemount: Mest selda rauðvínið

Vínið, Rosemount Shiraz/Cabernet Sauvignon í þriggja lítra kassa náði þeim framúrskarandi árangri í desember að verða mest selda kassavínið í vínbúðum sem og mest selda léttvínið í sama mánuði. Vínið sem þykir eitt besta kassavín sem fæst hér á landi hefur svo sannarlega slegið í gegn og virðist smellpassa að smekk landans, en vínið kom fyrst á markað hér fyrir um einu ári.
Vín frá Rosemount hafa veri í hópi vinsælustu vína hérlendis um nokkurt skeið, má nefna að hvítvínið Rosemount GTR hefur verið mest selda hvítvínið í flöskum í vínbúðum undanfarið ár. Fyrir jólin hófst sala á þessu vinsæla víni í kössum. GTR stendur fyrir þrúgurnar GewürzTraminer og Riesling sem blandað er saman með einkar góðum árangri. Í kassa er vínið alveg sérstaklega góð kaup, kostar 3.600 kr. sem jafngildir því að flaska af víninu kostaði 900 kr. Rosemount Shiraz / Cabernet var fyrsta tveggja þrúgna kassavínið frá Rosemount. Vínið hefur fjólurauðan lit, góða fyllingu, er mjúkt með sætum ávexti og léttkryddaðri eik. Góður kostur fyrir þá sem eru að leita að virkilega góðu rauðvíni á kassa sem hentar við ýmis tækifæri og með ólíkum mat. Verðið á víninu er afar hagstætt eða 3.780 krónur og jafngildir því að flaskan myndi kosta 945 kr.
Greint frá í Fréttablaðinu
Heiðar Birnir Kristjánsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn5 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax


