Vertu memm

Markaðurinn

Víking Sumaröl

Birting:

þann

Sumaröl - Víking

  • Víking Sumaröl er fyrsti íslenski sumarbjórinn
  • Búið að breyta og fríska upp á umbúðir.
  • Nýtt bragð. Jarðaberjakeimur með bleikum tónum.
  • Kemur í verslanir 1.júní.

Íslendingar elska hita. Sem er ótrúlegt í ljósi þess hvar á hnettinum við erum stödd og ákveðum að eyða tíma okkar.  Þegar kaldir norðanvindar blása þráðbeint í andlitið á okkur sjá margir í hyllingum stól á sólarströnd, við sundlaugarbakkann eða á einum góðum veitingarstað í miðborgum suðrænna landa.

Oftar fylgja þessum tálsýnum ískaldir drykkir þaktir rakadropum sem gefa til kynna hversu ótrúlega kaldir og svalandi þeir séu.

Bjór

En ekki hvaða bjór sem er, eitthvað létt og ljúft á bragðið. Eitthvað sem svalar þorsta en á bragðgóðann hátt. Ferskleiki. Víking Sumaröl er vinsælasti sumarbjór Íslendinga til margra ára en það er alltaf gott að breyta aðeins til. Því var lagst í tilraunamennsku og eftir að strangar og á tímabili erfiðar smakkanir var niðurstaðan mjög skýr.

“White ale bjór með jarðaberjakeim sem bragðast best ískaldur úr glasi. Bleikir undirtónar tóna vel við sólina og gefa sterklega til kynna að nú sé loks komið sumar. Sumaröl í 2016 klæðnaði.  Það er því einstaklega ljúft að drekka hann og enn betra að horfa á í fallegu glasi. Hann er jafnvígur í útilegunni eða heima við grillið. Í pottinum eða á leið inn í dalinn.  Víking Sumaröl kemur í verslanir 1. júní og er hans beðið með eftirvæntingu.”

Segir vörumerkjastjóri Víking, Hilmar Geirsson.

 

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið