Keppni
Oddný Ingólfsdóttir sigraði vínþjónakeppni
Nýlokið er vínþjónakeppni á vegum Vínþjónasamtaka Íslands þar sem valinn var annar keppandi til þátttöku í keppninni Besti vínþjónn Norðurlanda, sem fram fer í Svíþjóð í haust. Manuel Schembri tók sér sæti í þeirri keppni þegar hann sigraði titilinn Vínþjónn ársins 2023.
Að þessu sinni var það Oddný Ingólfsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari eftir langan og krefjandi keppnisdag. Keppnin samanstóð meðal annars af skriflegu prófi, skriflegt blindsmakk á léttvíni, staðfestingu á sterku víni, umhellingu, kampavínsþjónustu, pörun matar og vína, leiðréttingu vínseðils og munnlegu blindsmakki á rauðvíni. Að auki þurftu keppendur að greina villur í vínum (spot the wine fault). Öll keppnin fór fram á ensku.
Dómarar keppninnar voru:
Alba E. H. Hough
Peter Hansen
Þorleifur „Tolli“ Sigurbjörnsson
Vínþjónasamtökin óska öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þakka Brass Kitchen and Bar kærlega fyrir frábæra þjónustu og aðstöðuna sem þau veittu.
Ertu skráð(ur) í Vínþjónasamtökin?
Nýir félagar geta gengið í samtökin með því að senda fullt nafn og kennitölu á netfangið [email protected]
Árgjaldið er 4.800 krónur.
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Keppni4 dagar síðanManuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Markaðurinn5 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Frétt5 dagar síðanSkreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt3 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Keppni6 dagar síðanAlexander Jósef stóð uppi sem sigurvegari með „Chris Pine“









