Freisting
Veitingastaðurinn Ráin 20 ára

Þann 19. september næstkomandi nær Ráin þeim merka áfanga að eiga 20 ára afmæli. Það þykir merkisatburður að veitingahús nái svona háum aldri í veitingabransanum og eru fá veitingahús hér á Íslandi sem geta státað af því.
Hjónin Björn Vífill og Nanna opnuðu Ránna árið 1989 þá var Ráin á 2 hæðum, í framhaldi af því var opnuð Ingimundarbúð og er hún í dag notuð undir fundi og fordrykki. Árið 1999 stækkuðu þau svo aftur við sig og opnuðu Brúnna sem í dag er einn fallegasti veitingastaður á Reykjanesinu.
Ráin er þekkt fyrir góða og sveiganlega þjónustu bæði af starfsfólki í sal sem og í eldhúsi.
Í tilefni 20 ára afmæli Ráarinnar, laugardaginn 19. september verður slegin upp glæsileg afmælisveisla og boðið verður upp á forrétt, Steikarhlaðborð, Kaffi og líkjör á aðeins kr. 4.500.
Áhöfnin á Halastjörnunni mun skemmta gestum ásamt ARIZONA.
(Áhöfnin á Halastjörnunni skipa Gylfi Ægisson, Hemmi Gunn og Ari Jónsson)
Smellið hér til að lesa nánar um afmælisveisluna (Pdf-skjal)
Smellið hér til að fara í sýndaferð um Ránna.
-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn7 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni7 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd



