Freisting
Sauðamessa – héraðshátíð í Borgarnesi

Sisso
Þetta er í 3. sinn sem hátíðin var haldin og voru eins og áður þeir Gísli Einarsson og Björn Bjarki Þorsteinsson yfirsauðir samkomunnar, og var hápunktur hennar í Skallagrímsgarði í Borgarnesi.
|
|
Vitanlega þurfti borgarsauðurinn að skreppa á ættarmótið í Borgarnesi með hinum sauðunum og reyna að deifa fráhvarfseinkennin við það að vera langt í burtu frá öllum hinum sauðunum.
Fyrst var áð í Olís í Borgarnesi en þeir höfðu auglýst Smalabita og lék mér forvitni á að vita hvað þar væri á ferðinni og var pantaður einn slíkur og kom á borðið bátur með lambasteik, grænmeti, osti og bearnaisesósu og reyndist bara hinn besti biti eftir allt saman.

Síðan var haldið í Skallagrímsgarð en þar var skemmtunin haldin, boðið var upp á kjötsúpu fyrir gesti og gangandi og inn í garðinu voru nokkur tjöld þar sem vörur úr héraði voru til sölu, svo sem berjasultur, berjasafar, berjahlaup, sveppir úr Skorradal, fiskmeti, brauð og margt fleira og flaug mér í hug að metnaðargjarnir matreiðslumenn sem vilja skera sig frá fjöldanum ættu að mæta á svona héraðshátíðir og komast í beint samband við bændur sem eru að framleiða hágæðavörur úr íslensku hráefni.

Einnig var hann Sisso að kynna Hvannalambið frá Höllu í Skarðssveit og var hann með frampart af hvannalambi og af venjulegu lambi einungis kryddað með salt og pipar og vá þvílíkur munur í hvannalambinu og er þetta lambabragð sem við þekkjum öll horfið úr kjötinu sem gefur möguleika á breiðari markaðsetningu á lambakjöti og kannski eftir 5-10 ár geta matreiðslumenn valið úr heiðarlambi, fjörulambi, hvannalambi og jafnvel fleiri tegundum af lambakjöti.





Borgarsauðurinn hélt sæll og glaður til baka til borgarinnar ánægður með daginn og fráhvarfseinkennin horfin.
Myndir og texti; SH borgarsauðurinn
-
Markaðurinn6 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn6 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni2 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni2 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




