Kristinn Frímann Jakobsson
Raunveruleikasjónvarp á Kaffi Krók
Þessa dagana er hópur á vegum þýskrar sjónvarpsstöðvar staddur í Skagafirði við gerð raunveruleikaþátta þar sem fjórir kokkanemar spreyta sig í matargerð. Þeir munu sjá um veitingastaðinn Kaffi Krók næstu vikuna og elda fyrir gesti og gangandi. Eru bæjarbúar hvattir til að líta við og smakka afraksturinn.
Að sögn Írisar Sveinsdóttur, sem er hópnum til aðstoðar meðan þau dvelja hér á landi, komu kvikmyndagerðarmenn til landsins fyrr í sumar og skoðaðu ýmsa staði. Leist þeim best á Sauðárkrók og var það úr að upptökur færu fram á Kaffi Krók, í góðu samstarfi við Kristínu Magnúsdóttur eiganda staðarins, að því er fram kemur á heimasíðu feykir.is
Þátttakendur eru fjórir ungir kokkanemar og vissu þau einungis að ferðinni væri heitið til Íslands, en ekki hvert. Auk eldamennskunnar á Kaffi krók þurfa þau að leysa ýmis verkefni. Í síðustu viku þegar Feyki bar að garði voru þau t.a.m. búin að fara út á Fjörð og veiða og ná í lambakjöt beint frá býli.
Eiga þau einkum að kynna sér íslenska matarmenningu og spreyta sig á því að elda úr íslensku hráefni.
Mynd: feykir.is
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn7 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn11 klukkustundir síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn7 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn6 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Markaðurinn7 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Frétt5 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt



