Uncategorized
Heimsmeistarakeppni barþjóna

Guðmundur Sigtryggson að keppa
Mánudaginn 2 október síðastliðin héldu nokkrir meðlimir Barþjónaklúbbs Íslands til Þessalóníku í Grikklandi. tilgangur ferðar var að keppa í heimsmeistaramót barþjóna bæði í klassískri kokkteilblöndun og flair-barmennsku.
Íslendingar tóku þátt í klassísku keppninni þar sem að þessu sinni er keppt í drykkjum sem nefndir eru LONG DRINKS og eru það drykkjarblöndur fylltar upp með söfum eða gosrykkjum.
Fulltrúi Íslands í keppni um besta LONG DRYKKINN er núverðandi íslandsmeistari Guðmundur Sigtryggsson barþjónn á Nordica Hótel.
Keppnin var hörð og komst Guðmundur ekki á pall, þrátt fyrir góða frammistöðu að mati viðstaddra hlaut drykkur hans Harpa ekki náð fyrir augum og bragðkirtlum dómara.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Vinningshafar í flair
-
1.sæti Tyrkland Levent Yilmaz
-
2.sæti Uruguay Danilo Oribe ( Íslandsvinurinn )
-
3.sæti Austuríki Hotter Andi
Vinningshafar Long Drinks
-
1.sæti Taiwan Kung Hui Chun með drykkin Cool Sweet Heart
3 cl Bacardi Carta Blanca
3 cl Amade chocOrange
3 cl Monin Mojito mint
2,5 cl Orange juice
0,5 cl Lemon Juice
-
2.sæti Austuríki Stefan Stevancsecz með drykkin Aphrodite
3 cl Absolut Ruby Red (rauður greip)
2 cl Grand Marnier
1 cl Monin Amaretto
3 cl Passion Fruit Puree
6 cl Physalis nectar
-
3.sæti Finnland Harri Tormanen með drykkin Stop-ready-go
4 cl Finnlandia Mango
2 cl Cointreau
3 cl Mango Mixibar ( frá Fabbri )
2 cl Green apple mixibar (frá Fabbri)
2 cl Cranberry juice
Fagleg vinnubrög fékk Helger Aava frá Eistlandi .
Finnar fengu liðaverðlaunin.
Barþjónaklúbbur Íslands gerði athugasemd við 2 drykki sem innihéldu aðeins einn hluta af áfengi þar á meðal komst annar drykkurinn í úrslit.
Barþjónaklúbbur Íslands fékk afsökunarbeiðni frá Forsetanum Derrik Lee og varaformanninum Ron Bussman. Og lofuðu þeir að þetta kæmi ekki fyrir aftur.
Fyrir næstu keppni sem haldinn verður í Taiwan drógum við Drambuie og er þurr keppni.
Heimild: Bar.is
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



