Frétt
Hátt í 100 manns án atvinnu
Hátt í eitt hundrað manns misstu vinnuna eftir brunann í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag.
Tveir stærstu veitingastaðirnir sem brunnu höfðu hátt í 70 starfsmenn. Þeir eru báðir með tryggingu sem tryggir starfsmönnum laun á meðan þeir eru í atvinnuleit.
Ekki eru enn nákvæmar tölur um hversu margir misstu vinnuna eftir brunann en samkvæmt heimildum fréttastofu eru þeir hátt í eitt hundrað talsins. Fimm fyrirtæki voru rekin í húsunum sem brunnu að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Þau voru Pravda, Kaffi ópera, Kebab húsið, Rósenberg, og Tourist Booking . Einar Ingason framkvæmdastjóri Pravda segir að yfir fimmtíu manns hafi verið í föstu og hlutastarfi á staðnum og enn sé óljóst hvað verði um þá.
Tuttugu manns voru að hefja störf hjá Kaffi Óperu sem hugðist opna nýjan stað 1.júní næstkomandi og fara starfsmenn þar líklega til starfa á öðrum veitingastöðum sem fyrirtækið 101 heild rekur. Alls störfuðu 20 manns hjá Rósenberg og Kebab húsinu sem brunnu einnig illa. Til viðbótar eru nokkrir starfsmenn sem störfuðu á öllum stöðum í hlutastarfi.
Niels Olgeirsson formaður Matvæla- og veitingafélags Íslands réttarstöðu starfsmanna sem lenda í svona aðstæðum mjög litla. Hafi fyrirtæki hins vegar svokallaða rekstrarstöðvunartryggingu greiði hún laun starfsmannanna þar til þeir komast í aðra vinnu.
Eigendur Pravda og Kaffi óperu segja báða staðina hafa verið vel tryggða. Þeir hafi rekstrarstöðvunartryggingu sem tryggi starfsmönnum laun á meðan þeir leiti annarra starfa. Eigendur Rósenbergs og Kebab hússins segjast ekki hafa slíka tryggingu og því fái starfsmenn þar, ekki greidd laun líkt og hjá hinum stöðunum. Niels segir að fólk eigi ekki eftir að eiga í erfiðleikum með að finna störf við sitt hæfi. Mikil mannekla sé á veitingahúsum og skemmtistöðum borgarinnar og nóga atvinnu að hafa.
Greint frá á visir.is
Ljósmynd: Freisting.is/©BASI
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Markaðurinn11 klukkustundir síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Markaðurinn4 dagar síðanSparaðu með júlítilboðum Nathan
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn3 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí




