Freisting
Fræðslufundur MAST: Salmonella

Matvælastofnun heldur fræðslufund um salmonellu í fóðri, búfé og matvælum þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um salmonellu á Íslandi, þróunina undanfarin ár, stöðuna í dag og framtíðarhorfur á öllum stigum fæðukeðjunnar allt frá dýrafóðri að tilbúnum matvælum.
Á árinu 2008 greindist salmonella í auknum mæli í sýnum í fóðurstöðvum og í svína- og alifuglaeldi við reglubundna vöktun Matvælastofnunar. Salmonellutilfelli komu einnig upp í hrossum og ávallt er hætta á að sýkillinn komi upp í öðrum dýrum eða matvælum, innlendum sem innfluttum. Sýkillinn getur borist í menn við neyslu á menguðum matvælum og með snertingu við sýkt dýr með tilheyrandi heilsuspillandi áhrifum. Það er því full ástæða til að standa vörð um góða stöðu salmonellu hér á landi og að bregðast við aukinni tíðni með nauðsynlegum úrbótum.
Á fundinum verður einnig fjallað um matvælafrumvarpið og viðbótartryggingar vegna salmonellu.
Fyrirlesarar:
- Sigurborg Daðadóttir, gæðastjóri hjá Matvælastofnun
- Konráð Konráðsson, dýralæknir svínasjúkdóma hjá Matvælastofnun
- Þuríður E. Pétursdóttir, fóðursérfræðingur hjá Matvælastofnun
Erindin verða haldin í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!
Sjá www.mast.is
-
Markaðurinn6 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn6 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni2 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni2 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag



