Vertu memm

BragðaGarður sameinar mat, fræðslu og sjálfbærni

09okt11:0015:00BragðaGarður sameinar mat, fræðslu og sjálfbærniEftir

Upplýsingar um viðburð

Slow Food á Íslandi stendur fyrir BragðaGarði, skemmtilegri og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur fimmtudaginn 9. október frá klukkan 11:00 til 15:00.

Hátíðin er sérstaklega ætluð nemendum í framhaldsskólum landsins og elstu bekkjum grunnskóla. Þar verður maturinn í aðalhlutverki og lögð áhersla á matarhefðir, íslenskt hráefni, sjálfbærni og skynjun.

Nemendur leiða jafningjafræðslu

Nemendur Hótel- og matvælaskólans í MK munu leiða jafningjafræðslu á hátíðinni og sjá um fjölbreytt verkefni fyrir gesti.

Meðal þess sem verður í boði er fræðsla um mat og matarhefðir, sjálfbærni í matvælaframleiðslu og þjálfun bragðlauka og þefskyns. Þá verður boðið upp á leiki og verkefni sem tengjast mat og umhverfi.

Jurtakokteilabar verður á svæðinu og einnig verður sýnikennsla þar sem útbúnir verða einfaldir réttir fyrir ungmenni úr íslensku hráefni. Þá verður jafnframt kynning á kjötverkun og vinnslu matvæla.

Smakkað, lyktað og upplifað

Markmiðið með BragðaGarði er að gefa ungu fólki tækifæri til að fræðast um uppruna matarins, menningu og hefðir sem tengjast matvælum og mikilvægi sjálfbærni.

Einnig verður sjónum beint að því hvernig meðvitaðar ákvarðanir um mat geta haft áhrif á framtíðina.

Fræðslan fer fram með lifandi hætti í umhverfi Grasagarðs Reykjavíkur þar sem nemendur fá að smakka, lykta, leika og upplifa viðfangsefnin.

BragðaGarður er haldinn af Slow Food á Íslandi í samstarfi við Matvælaskólann í MK, Reykjavíkurborg og Grasagarð Reykjavíkur.

Hátíðin fer fram fimmtudaginn 9. október frá klukkan 11:00 til 15:00 í Grasagarði Reykjavíkur.

Meira

Tími

09.10.2026 11:00 - 15:00(GMT+00:00)