Vertu memm

20 ára afmælishátíð Iðunnar

16ág13:0015:0020 ára afmælishátíð IðunnarÞessum viðburði er lokið

Upplýsingar um viðburð

Í tilefni af 20 ára afmæli Iðunnar verður efnt til fjölskylduhátíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 16. ágúst.

Félagsfólki Iðunnar og fjölskyldum þeirra er boðið að taka þátt í deginum sem verður fjölbreyttur og skemmtilegur fyrir alla aldurshópa.

Dagskráin hefst klukkan 12:00 þegar Leikhópurinn Lotta stígur á svið með skemmtilegt atriði og gengur síðan um garðinn til að gleðja yngstu gestina.

Frá klukkan 13:00 tekur við tónlistardagskrá þar sem fram koma Jón Jónsson, Ragga Gísla, KK og VÆB.

Á milli klukkan 12:00 og 15:00 verður fjölbreytt afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna, meðal annars:

  • pylsur af grillinu fyrir félagsfólk,
  • andlitsmálun,
  • barmmerkjasmiðja,
  • búningafjör og
  • rafbílarallý.

Gestir eru hvattir til að mæta snemma og nýta sér jafnframt allt það sem Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hefur upp á að bjóða.

Félagsfólk Iðunnar og fjölskyldur þeirra fá ókeypis aðgang að hátíðinni.

Að lokinni skráningu birtist staðfesting á „Mínum síðum“ hjá Iðunni sem framvísað er við inngang Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á hátíðardaginn.

Skráning á afmælishátíðina fer fram á vef Iðunnar: Afmælishátíð Iðunnar

Meira

Tími

16.08.2026 13:00 - 15:00(GMT+00:00)