Frétt
Ekkert fipronil í íslenskum eggjum eða kjúklingum
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur birt niðurstöður mælinga á fipronil í eggjum, kjúklingum og varphænum innan EES. Matvælastofnun tók þátt í rannsókninni og fannst ekki fipronil í íslenskum eggjum og kjúklingum.
Sumarið 2017 komst upp um óleyfilega notkun á mítlaeyðinum fipronil við rauðum mítli (Dermanyssus gallinae) á varphænum í Evrópu.
Í kjölfarið á miklum innköllunum á eggjum og eggjavörum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) skipulagði Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) sérstakar sýnatökur til að kanna stöðuna varðandi leifar af mítlaeyðum í kjúklingaafurðum, varphænum, eggjum og eggjavörum. Sýnatökur voru gerðar frá 1. september til loka nóvember 2017, alls 5.439 sýni í flestum löndum EES. Sýni voru bæði valin tilviljanakennt og einnig voru vörur og býli valin vegna gruns um vandamál eða lyfjanotkun.
Matvælastofnun tók þátt í verkefninu og voru alls 10 sýni af eggjum og kjúklingakjöti send til greiningar á fipronil og öðrum efnum sem hægt væri að nota við rauðum hænsnamítli. Þar sem enginn grunur var um notkun mítlaeyða í alifuglaeldi var sýnatökum dreift tilviljanakennt á búin hérlendis.
Nú hefur EFSA birt niðurstöður úr þessum sýnatökum sem gefa gott yfirlit yfir tilvist fipronils og annarra mítlaeyða í hænueggjum, eggjavörum og kjúklingafitu/vöðvum á EES svæðinu.
Niðurstöður EFSA sýna að 742 sýni (13%) innihéldu leifar yfir hámarksgildi. Í þessum sýnum var mengun af völdum mítlaeyða yfir hámarksgildum næstum eingöngu vegna notkunar fipronils. Aðeins eitt sýni af eggjum reyndist innihalda leifar af mítlaeyðinum amitraz yfir hámarksgildum. Sýnin sem innihéldu leifar yfir hámarksgildum voru frá níu löndum EES og voru upprunnin í átta löndum; Hollandi, Ítalíu, Þýskalandi, Póllandi, Ungverjalandi, Frakklandi, Slóveníu og Grikklandi.
Sýnin sem tekin voru af Matvælastofnun af íslenskri framleiðslu voru öll laus við leifar af fipronili og öðru skordýraeitri. Fyrr á árinu 2017 hafði Matvælastofnun tekið sýni af sendingu af innfluttu eggjarauðudufti sem í reyndust vera leifar fipronils. Sendingin var endursend en varð til þess að framleiðslufyrirtæki sem hafði flutt inn sömu lotu fyrr um sumarið innkallaði framleiðsluvörur sem það hafði verið notað í. Innflutningseftirlit með eggjavörum var hert í kjölfarið og var krafist vottorðs um greiningar á leifum áður en eggjavörum var hleypt inn í landið.
Fipronil er notað bæði sem mítlaeyðir á gæludýr og sem skordýraeitur í og við byggingar og á einstaka káltegundir. Ekki er leyfilegt að nota lyfið til að meðhöndla dýr sem alin eru til manneldis. Leifar af fipronil geta fundist í eggjum/eggjaafurðum í mjög litlu magni vegna þess að ekki er hægt að útiloka að það berist í þau úr umhverfi. Hámarksgildi fyrir leyfilegt magn leifa eru sett í reglugerð um varnarefnaleifar í matvælum og fóðri nr. 672/2008 (EB 396/2005).
Mynd: úr safni

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Hafliði Halldórsson og landsliðskokkurinn Kristín Birta kynna íslenskan mat í hjarta Chicago
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Tækifæri í Hveragerði – Bás laus í Gróðurhúsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Aprílgabb Veitingageirans vakti kátínu
-
Frétt1 dagur síðan
Er sveinspróf í framreiðslu orðið úrelt á Íslandi?
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Efnisveitan í Skeifunni: Nýtt og notað fyrir hótel, veitingastaði og mötuneyti
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Við eigum majónesið fyrir þig – Heinz & Kraft majónes – Fullkomið fyrir stóreldhús
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Opnunartími Ekrunnar um páskana
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Kælivagn til leigu