Markaðurinn
Capfruit kynning með David Ducamp
Sorbet, konfektmolar, eftirréttir og kokteilar
Þriðjudaginn 31.október verður David Ducamp með kynningu á Capfruit púrrum. Við fáum að smakka ýmsar útgáfur af réttum og kokteilum með púrrum.
Kynningin verður samhliða Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins sem verður haldin á La Primavera í Hörpu. Keppnin hefst klukkan 8 og er áætlað er að kynna úrslit klukkan 16.
Capfruit kynning Davids hefst klukkan 14:00.
Capfruit leitast eftir því að varðveita lífræna eiginleika vörunnar. Til að tryggja sjálfbæran jarðveg, eru vinnsluskrefum haldið í lágmarki.
David Ducamp hóf nám sitt 17 ára gamall hjá Gérard Mulot, mjög virtum pastry chef sem starfaði í 6. hverfi
Parísar. Tveimur árum síðar var hann aðstoðarmaður hjá Guy Savoy L’Etoile de Deux Ans í 8. hverfi og síðan á veitingastaðnum Les Ambassadeurs á ‘Hôtel de Crillon.
Árið 1996 vildi hann freista gæfunnar erlendis. Hann starfaði fyrst í Artopolis, síðan í Leela-höllinni í Bangalore og á Coffemania í Moskvu. Í dag starfar David sem ráðgjafi og matreiðslukennari hjá Capfruit.
David hefur einstaka reynslu og tæknikunnáttu í að útfæra brögð á skemmtilegan og spennandi hátt. Skemmtilegast finnst honum að deila þeirri reynslu með öðrum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn7 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




