Freisting
Berglind Loftsdóttir, matreiðslunemi til Kanada
|
|
Ráðstefnan hjá kokkaklúbbnum Canadian Culinary Federation (CCFCC), verður haldin dagana 31 maí – 3 júní n.k., en hún er haldin í hótelinu Renaissance við flugvöll Toronto í Kanada.
Einn íslendingur kemur til með að taka þátt í sérstöku verkefni sem er haldin samhliða sýningunni, en það er hún Berglind Loftsdóttir, meðlimur í Norðurlandaliði Ungkokka sem samanstendur einn kandítat frá hverju landi, en þau eru:, Noregur, Danmörk, Svíðþjóð, Finnland og Ísland, en það lið keppir við Kanadíska ungkokkaliðið, en keppnin sjálf er í raun og veru vinakeppni.
Keppnin er liður í því að kynna á Wacs ráðstefnunni sem haldin verður í Dubai árið 2008, en hugtak og heildarhugmynd af keppninni er að virkja ungkokka um allan heim sem skipta sköpum um framtíð og þróun matargerðarmenningunar.
Hvert lið eldar þriggja rétta máltíð fyrir 55 manns undir leiðsögn leiðbeinendur. Keppendur eiga að elda heilsuríka-, og sjávarrétti sem grunnhráefni.
Berglind er fædd árið 1987 og er á þriðja ári í námi og lærir fræðin sín hjá Bjarka Hilmarssyni, matreiðslumeistara á Hótel Geysi. Berglind er einnig meðlimur Ungkokka Íslands
Nokkrar keppnir verða haldnar samhliða sýningunni, en keppnirnar heita: CCFCC Chef of the Year sem er haldin í fyrsta sinn, The Nordic Junior Challenge sem hún Berglind keppir í, og National Knorr Junior Culinary Challenge, en allar keppnirnar verða haldnar í Humber Háskólanum í Toronto sem er 10 mínútur akstur frá sýningunni.
Keppendur í Norðurlandaliði Ungkokka eru:
-
Lasse Koch Danmörk
-
Antti Kinnunen Finnland
-
Morten Andre Nielssen Noregur
-
Berglind Loftsdóttir Ísland
-
Disa Pernilla Mårtensson Svíðþjóð
Leiðbeinendur:
-
Uffe Nilsen Danmörk
-
Jorma Harane Finnland
-
Frode Myklevik Noregur
-
Sverrir Halldórsson Ísland
-
Rolf Sjödin Svíðþjóð
Keppendur í Kanadíska Ungkokkaliðinu eru:
-
Keegan Bursey St. Johns, Newfoundland
-
Guillaume Cantin Québec, Québec
-
Michael Sisti Windsor, Ontario
-
Shannon Roussel Kelowna, British Columbia
-
Lisa Mueller Toronto, Ontario (gesta ungkokkur)
Leiðbeinendur:
-
Marcel Kretz, CM, CCC Val-David, Québec
-
Albert Schnell, CCC Toronto, Ontario
-
Marcus VonAlbrecht Vancouver, British Columbia
Humber Háskólinn hefur sett upp vefmyndavélar í keppniseldhúsunum svo hægt verði að horfa á allar keppnirnar í beinni.
Smellið hér til að horfa á keppnirnar, athugið að kveikt verður á myndavélunum hálftíma fyrir hverja keppni.
Tímaáætlun á keppnunum er hægt að skoða hér ( Pdf skjal )
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt6 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni4 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Markaðurinn5 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni5 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd




