Frétt
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
Neytendastofu hafa borist ábendingar vegna notkunar erlendra tungumála í markaðssetningu í miðbæ Reykjavíkur.
Af því tilefni og vegna áherslu sem stofnunin hefur haft á að fylgja eftir ábendingum um tungumálanotkun, m.a. vegna viljayfirlýsingar Menningar- og viðskiptaráðherra og Neytendastofu, var ákveðið að byrja á að skoða matseðla og markaðsefni veitingastaða í miðbænum.
Sameinað var eftirlit með verðmerkingum þar sem kveðið er á um að matseðill skuli vera aðgengilegur við inngöngudyr og eftirliti með því að markaðsefni sé á íslensku.
Tekin var skoðun á 83 veitingastöðum og kom í ljós að aðeins tveir höfðu engan matseðil við inngöngudyr. Algengt var að matseðill væri birtur á íslensku og erlendu tungumáli en þó voru gerðar athugasemdir við að 34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku. Þessu til viðbótar voru gerðar athugasemdir við að sex veitingastaðir sem höfðu matseðla sýnilega á íslensku birtu annað kynningarefni eingöngu á ensku.
Í síðastnefnda tilvikinu sendi Neytendastofa veitingastöðunum leiðbeiningar um skyldu til að notast við íslensku í markaðsefni.
Skoðuninni var fylgt eftir hjá þeim 36 veitingastöðum þar sem matseðill var ekki sýnilegur eða aðeins sýnilegur á ensku. Af þessum stöðum höfðu 18 gert breytingar og birta nú matseðil á íslensku.
Neytendastofa mun nú taka upp formlega málsmeðferð gagnvart þeim 18 stöðum sem ekki brugðust við athugasemdum stofnunarinnar um að birta matseðla og annað kynningarefni á íslensku.
Mynd: úr safni
-
Keppni3 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn9 klukkustundir síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM
-
Markaðurinn3 klukkustundir síðanNýtt vörumerki hjá Nathan: Arco




