Frétt
Fullskipað af veitingahúsum á Skólavörðustíg
Veitingastaðurinn Noodle Station við Skólavörðustíg 21a fær ekki starfsleyfi þar sem hlutfall veitingastaða á viðkomandi svæði er nú þegar jafnhátt og leyfilegt er. Staðurinn hefur notið nokkurra vinsælda síðan hann fór af stað.
Eigandi staðarins opnaði hann án nokkurra leyfa frá Reykjavíkurborg fyrir nokkru síðan. Eftir að Matvælaeftirlit borgarinnar hafði samband við eigandann lokaði hann staðnum sjálfviljugur og þáði leiðbeiningar um það hvernig ætti að standa að leyfisumsóknum, að sögn Óskars Ísfeld, hjá Matvælaeftirlitinu.
Var eigandanum ráðlagt að senda fyrirspurn til byggingafulltrúa um það hvort skipulag heimilaði að veitingastaður væri starfræktur í húsinu. Starfsmenn Matvælaeftirlitsins upplýstu hann jafnframt um að annar aðili hefði nýlega fengið höfnun á að opna veitingastað í nágrenninu, þar sem hlutfall veitingastaða var orðið jafnhátt og skipulag leyfði.
Í glugga veitingastaðarins Noodle Station er nú tilkynning um að búið sé að loka staðnum vegna vandræða í tengslum við starfsleyfi.
Greint frá á Mbl.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Markaðurinn6 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn4 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt5 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu



