Frétt
Hátt í 100 manns án atvinnu
Hátt í eitt hundrað manns misstu vinnuna eftir brunann í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag.
Tveir stærstu veitingastaðirnir sem brunnu höfðu hátt í 70 starfsmenn. Þeir eru báðir með tryggingu sem tryggir starfsmönnum laun á meðan þeir eru í atvinnuleit.
Ekki eru enn nákvæmar tölur um hversu margir misstu vinnuna eftir brunann en samkvæmt heimildum fréttastofu eru þeir hátt í eitt hundrað talsins. Fimm fyrirtæki voru rekin í húsunum sem brunnu að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Þau voru Pravda, Kaffi ópera, Kebab húsið, Rósenberg, og Tourist Booking . Einar Ingason framkvæmdastjóri Pravda segir að yfir fimmtíu manns hafi verið í föstu og hlutastarfi á staðnum og enn sé óljóst hvað verði um þá.
Tuttugu manns voru að hefja störf hjá Kaffi Óperu sem hugðist opna nýjan stað 1.júní næstkomandi og fara starfsmenn þar líklega til starfa á öðrum veitingastöðum sem fyrirtækið 101 heild rekur. Alls störfuðu 20 manns hjá Rósenberg og Kebab húsinu sem brunnu einnig illa. Til viðbótar eru nokkrir starfsmenn sem störfuðu á öllum stöðum í hlutastarfi.
Niels Olgeirsson formaður Matvæla- og veitingafélags Íslands réttarstöðu starfsmanna sem lenda í svona aðstæðum mjög litla. Hafi fyrirtæki hins vegar svokallaða rekstrarstöðvunartryggingu greiði hún laun starfsmannanna þar til þeir komast í aðra vinnu.
Eigendur Pravda og Kaffi óperu segja báða staðina hafa verið vel tryggða. Þeir hafi rekstrarstöðvunartryggingu sem tryggi starfsmönnum laun á meðan þeir leiti annarra starfa. Eigendur Rósenbergs og Kebab hússins segjast ekki hafa slíka tryggingu og því fái starfsmenn þar, ekki greidd laun líkt og hjá hinum stöðunum. Niels segir að fólk eigi ekki eftir að eiga í erfiðleikum með að finna störf við sitt hæfi. Mikil mannekla sé á veitingahúsum og skemmtistöðum borgarinnar og nóga atvinnu að hafa.
Greint frá á visir.is
Ljósmynd: Freisting.is/©BASI
-
Starfsmannavelta7 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Keppni7 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Frétt4 dagar síðanKrydd og Kavíar taka að sér allt að 1000 máltíðir á dag fyrir Reykjavíkurborg
-
Markaðurinn6 dagar síðanNý Cellini kaffihylki – Ítölsk kaffimenning í hverjum bolla
-
Keppni6 dagar síðanKría sigrar með Daydream og tryggir Íslandi sæti í Porto
-
Markaðurinn2 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Markaðurinn5 dagar síðanRómantísk red velvet terta sem slær í gegn á konudaginn






