Vertu memm

Uncategorized @is

Unnur keppir í dag

Birting:

þann

 Deaf Chef í Hótel- og veitingaskólanum í Valby í Danmörku

Deaf Chef í Hótel- og veitingaskólanum í Valby í Danmörku

Keppendur skoðuðu kryddjurtagarðinn hjá Hótel- og veitingaskólanum í Valby í Danmörku.
Að því loknu fékk hver keppandi að tína jurtir til að nota í réttina sína í dag.

Í dag fer fram keppnin Deaf Chef í Hótel- og veitingaskólanum í Valby í Danmörku og fulltrúi Íslands er Unnur Pétursdóttir matreiðslumaður.

Dagurinn í gær fór í mestu að kynnast öðrum keppendum og kanna aðstæður í eldhúsinu.  Keppendur koma frá löndum Danmörku, Svíþjóð, Englandi, Frakklandi, Spáni, Kanada og Bandaríkjunum.  Eftir að keppendur höfðu skoðað eldhúsið var farið á veitingastaðinn Papirøen street food Copenhagen í kvöldmat.

Unnur er númer sex í röðinni og byrjar klukkan 09:20 og þarf að útbúa þriggja rétta kvöldverð, 5 diska fyrir hvern rétt og einn sýningardisk og skilar eftirréttinum klukkan 15:10 í dag.

Matseðill Unnar er:

Í forrétt verður þorskrúlla með dillolíu-þorskfarsi, ostrursalati, sellerí mauk, ætiþistla teninga, shallot lauk, brenndan blaðlauk, fiskósu og dill.

Í aðalréttinum ætlar Unnur að vera með kanínarúllu, kanínu confit, rauðlauksultu, sinnep, kartöflur með blaðlauks fyllingu, grænafroðu, Rauðvínsósu með svínatungu, gulrótamauk og kerfil.

Eftirrétturinn inniheldur valhnetu deig, Créme anglaise, epli, hunangsfrauð, valhnetu crumble, eplakúlu, karamellu og tuile.

Kolbrún Völkudóttir og Unnur Pétursdóttir

Kolbrún Völkudóttir aðstoðarkona og Unnur Pétursdóttir

Fleira tengt efni:

Unnur er komin til Danmerkur – Með nær 100 kíló af eldhúsgræjum í farangrinum

Unnur Pétursdóttir keppir í Deaf Chef í Danmörku

Myndir: Unnur Pétursdóttir

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið