Markaðurinn
Stóreldhúsasýning verður í Höllinni
Fyrsta STÓRELDHÚSASÝNINGIN var haldin á Grand Hóteli 2005. Síðan þá hafa sýningarnar verið haldnar annað hvert ár og vaxið og dafnað. Undanfarin ár hafa þær verið í Laugardalshöllinni við bestu skilyrði. Við urðum að fresta sýningunni 2021 en núna er bjartara yfir og stefnir í glæsilega STÓRELDHÚSASÝNINGU 10. og 11. nóvember n.k. Og að sjálfsögðu verður hún haldin í HÖLLINNI.
Sem fyrr er öllu starfsfólki Stóreldhúsa boðið á sýninguna. Hefur starfsfólkið sannarlega kunnað að meta þetta boð og streymt á hverja Stóreldhúsasýningu alls staðar að af landinu.
Birgjar á stóreldhúsasviði hafa ætíð boðið upp á einstaklega glæsilega bása og sýnt að það er mikill þróttur í þessum geira. Er hver sýning einstaklega áhugaverð fyrir Stóreldhúsafólk bæði hvað varðar alls kyns tækjabúnað og veitingavörur hvers konar.
STÓRELDHÚSIÐ 2022 hefst fimmtudaginn 10. nóvember og lýkur föstudaginn 11. nóvember. Sýningin hefst klukkan 12.00 báða dagana og lýkur klukkan 18.00.
Eins og áður sagði er frítt fyrir starfsfólk stóreldhúsa enda fagsýning sem er ekki opin almenningi. Og nú er um að gera að merkja við dagana 10. og 11. nóvember. Og endilega senda áfram ef hentar eða
hengja upp á töflu.
Sjáumst öll í haust, Ólafur M. Jóhannesson, sýningarstjóri STÓRELDHÚSIÐ 2022, netfang: [email protected] sími: 698 8150
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




