Vertu memm

Vetrarmatarmarkaður Íslands haldin á jarðhæð í Hörpu

08mar(mar 8)11:0009(mar 9)17:00Vetrarmatarmarkaður Íslands haldin á jarðhæð í HörpuEftir

Upplýsingar um viðburð

Helgina 8. og 9. mars verður Vetrarmatarmarkaður Íslands haldin á jarðhæð í Hörpu.  Opið frá kl. 11:00 til 17:00 báða daga og frítt inn.

Matarhetjur Íslands koma saman með sætt, seigt og safaríkt. Vopnuð ástríðu fyrir matnum og ferlinu. Einkunarorð Matarmarkaðar Íslands eru upplifun, uppruni og umhyggja.

Öll velkomin og endilega takið börn – næstu kynslóð neytenda- með og kynnið þau fyrir einstakri stemningu á Matarmarkaði Íslands. Matur er manns gaman.

Tími

08.03.2025 11:00 - 09.03.2025 17:00(GMT+00:00)