Vertu memm

Matarhátíðin Food & Fun

25febAllan daginn01marMatarhátíðin Food & FunEftir

Upplýsingar um viðburð

Matarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn dagana 25. febrúar til 1. mars næstkomandi. Að venju koma saman gestakokkar frá Evrópu og Norður-Ameríku með fremstu veitingastöðum Reykjavíkur, þar sem boðið verður upp á sérstaka Food & Fun matseðla í tilefni hátíðarinnar.

Áhersla er lögð á íslenskt hráefni og samstarf erlendra og innlendra matreiðslumanna, þar sem markmiðið er að bjóða gestum upp á vandaða og eftirminnilega matarupplifun í hverjum rétti.

Opnað verður fyrir borðabókanir á allra næstu dögum á Dineout.is og eru áhugasamir hvattir til að taka dagana frá, enda hefur Food & Fun fest sig í sessi sem fastur liður í viðburðadagatali veitingageirans.

Mynd: foodandfun.is

Meira

Tími

25.02.2026 - 01.03.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)