Keppnin “Nordic Chef” verður haldin 3. júní 2023 og fer keppnin fram í bænum Hell í Noregi, samhliða Norðurlandaþingi matreiðslumanna NKF.
Fylgist með fréttum frá þinginu hér.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson hafnaði í 2. sæti í Matreiðslumaður Norðurlandanna árið 2022. Það var keppandi Norðmanna sem vann keppnina en mótið fór fram í Herning í Danmörku í mars 2022.
Sjá einnig: Besti heildar árangur Íslands til þessa
Nokkrar keppnir verða haldnar á Norðurlandaþingi matreiðslumanna NKF. Íslenskir fagmenn keppa fyrir hönd Íslands á mótunum.
Meðfylgjandi mynd er frá keppninni 2022:
F.v. Gabríel Kristinn Bjarnason, Aþena Þöll, Sveinn Steinsson og Sindri Guðbrandur Sigurðsson
Myndina tók Mynd: Brynja Kr Thorlacius