Vertu memm

Jólaveisla Flóru og Hannesarholts

07des19:0022:00Jólaveisla Flóru og HannesarholtsÞessum viðburði er lokið

Upplýsingar um viðburð

Meistarakokkarnir Sindri og Sigurjón í Flóru veisluþjónustu töfra fram dýrindis jólakvöldverð í Hannesarholti 7. desember. Húsið opnar kl. 18:00 og matur er borinn fram kl. 19:00.  Veislan verður á fyrstu hæð í Hannesarholti. Hægt er að velja um kjötveislu og veganveislu. Einnig er hægt að panta vínpörun með matnum eða áfengislausa drykkjarpörun.

Ath. ef það eru einhver ofnæmi vinsamlegast tilkynnið þau tímalega í tölvupósti [email protected]

Jólaveisla Flóru

Réttir til að deila

Sveppa og rjúpuvillibráðarsúpa með lakkrísfroðu

Íslensk gæsalifrarmús með kirsuberjagel og villisveppasósa

Reyktur Lax, pönnukaka, wasabi-rjómi og granatepli

Eggjabrauð með feyki ostakremi, Parmaskinka og truffluhunang

Forréttur

Hægelduð bleikja með sellerírótarremúlaði, kryddjurtakrem, perlulaukur og piparrót

Aðalréttur

Nautalund með kartöfluköku ásamt sveppaduxell, gulrótum, pickluðum lauk, róstaðar möndlur og kryddgljáa

Eftirréttur

Risa ala mande með krisuberjasósu, kirsuberjasorbet og möndlupralín

Jólaveisla Flóru Vegan

Réttir til að deila

Heitar aspastartalettur
Sellerírótarmús með kirsuberjagel og villisveppasósa
Reyktar gulrætur , pönnukaka, wasabi-rjómi og granatepli
Stökkt brauð með kryddjurtakremi, Rauðbeður og truffluhunang

Forréttur

Grasker með sellerírótarremúlaði, kryddjurtakrem, perlulauk og piparrót

Aðalréttur

Vegan wellington með kartöfluköku með sveppaduxell, gulrótum, pickluðum lauk, róstaðar möndlur og sveppasósu

Eftirréttur

Risa ala mande með krisuberjasósu, kirsuberjasorbet og möndlupralín

Meira

Tími

07.12.2024 19:00 - 22:00(GMT+00:00)