Bjórhátíð Ölverk 2024
04oktAllan daginn05Bjórhátíð Ölverk 2024Þessum viðburði er lokið
Upplýsingar um viðburð
Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara! Bjórhátíðin mun fara fram helgina 4. til 5. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem
Upplýsingar um viðburð
Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!
Bjórhátíðin mun fara fram helgina 4. til 5. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði en miðasala hófst þriðjudaginn 30. júlí sl. kl 12:00 inn á tix.is
Sjá staðfesta framleiðendur hér fyrir neðan en þessi listi er ekki tæmandi og mun uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:
– Könglar ( Hallormsstaður )
– Hovdenak Distillery ( Reykjavík )
– Smiðjan brugghús ( Vík )
– Mývatn öl ( Mývatn )
– Malbygg brugghús ( Reykjavík )
– Mjólkursamsalan ( Selfoss/Reykjavík )
– Litla brugghúsið ( Garður )
– Víking brugghús ( Akureyri )
– Ölverk brugghús ( Hveragerði )
– Gæðingur brugghús ( Kópavogur )
– Ægir brugghús ( Reykjavík )
– Grugg & Makk ( Reykjavík )
– Hella bjór ( Hella )
– Borg brugghús ( Reykjavík )
– Álfur brugghús ( Reykjavík )
– Kjörís ( Hveragerði )
– RVK Brewing Company ( Reykjavík )
– The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )
– Agla gosgerð ( Reykjavík )
– Session ( Reykjavík )
– Brennivín ( Reykjavík )
– Ölvisholt brugghús ( Hafnarfirði)
– Öldur Meadery ( Hella )
– Fágun ( Ísland )
– Bjórsetur Íslands ( Hólar í Hjaltadal )
Dagskrá
Föstudagurinn 4. október
17:00 – 20:00 – Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum
20:05 – 20:20 Steinholding keppni bruggarana
20:20 Úlfur Úlfur
21:00 – 00:00 DJ Danni Deluxe
Laugardagurinn 5. október
16:00 – 20:00 – Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum
20:05 Páll Óskar
21:00 – 00:00 FM Belfast (DJ)
—– Aðrar hagnýtar upplýsingar —–
Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 – Hveragerði.
Miðaverð
Helgararmband 14.500,-
Föstudagsarmband 8900,- ( takmarkað magn í boði )
Laugardagsarmband 8900,- ( takmarkað magn í boði )
Innifalið í miðaverði
Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum, tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, sérvalin tónlistaratriði og danspartý.
Athugið smakkglösunum skal skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en hægt er að kaupa glasið fyrir 500,-.
Afhending armbanda
Fimmtudaginn 3. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.
Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 4. október og laugardaginn 5. október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið eða inn á veitingarstað Ölverk.
Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )
Gisting
Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.
Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is
Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu á móti bjórhátíðarsvæðinu.
Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að við pöntunum kl 21:00).
Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á [email protected]
Meira
Tími
04.10.2024 - 05.10.2024 (Allan daginn)(GMT+00:00)