Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður – Íslenska Flatbakan
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði Íslands í handbolta mun opna pizzastað ásamt tveimur öðrum mönnum, frænda sínum Ísak Rúnólfssyni bakara og Valgeiri Gunnlaugssyni, pítsusérfræðingi og rekstrarstjóra.
Við erum bara að leggja lokahönd á staðinn, eins og sést þá er ég bara í vinnugallanum. Svo skiptir maður fljótlega yfir í bakaragallann
, segir Valgeir í samtali við visir.is.
Valgeir, eða Valli eins og flestir kalla hann, segir þá félaga langt frá því að vera að finna upp hjólið í pitsugerðinni.
Við ætlum einfaldlega að bæta það sem okkur fannst mega bæta í pitsugerð, vera með framúrskarandi þjónustu og meðal annars bjóða upp á hluti sem venjulega eru ekki áboðstólum á pitsustöðum. Svo erum við líka með einn stærsta eldofn sinnar tegundar á Íslandi í eldhúsinu
, segir Valli hress.
En hvernig datt þeim í hug að opna saman pitsustað?
Við erum frændur, við Ísak, og hann er einn reynslumesti bakari landsins. Guðjón Valur er frændi unnustu minnar og einhvern tíma í spjalli við hann bar ég þessa hugmynd undir hann, sem honum leist vel á. Hann er meira að hugsa þetta til lengri tíma og fannst spennandi að taka þátt í að byggja upp eitthvað heima á Íslandi. Allt sem Guðjón gerir, það gerir hann vel og við líka
Valgeir segir staðinn verða hlýlegan og svolítið „retro“ og sjá þeir um alla hönnun og smíði sjálfir.
En mega aðdáendur fyrirliða handboltalandsliðsins eiga von á að geta barið goðið augum þarna?
Ég veit nú ekki hvort hann kemur til með að hoppa í bakaragallann þegar heimsmeistaramótinu lýkur
, segir Valli og hlær.
Þeir félagar stefna að því að opna staðinn um næstu mánaðamót og geta pitsuhungraðir Íslendingar fylgst með á Facebook-síðu þeirra.
Myndir: Íslenska Flatbakan
Greint frá á visir.is
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn5 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn7 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPáfinn skálar fyrir fyrstu vínflöskunum úr eigin víngarði
-
Markaðurinn4 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Frétt3 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð




