Markaðurinn
Innköllun á Fireball
Haugen-Gruppen ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Fireball kanilviskí. Framleiðandi Fireball, Sazerac Company í Bandaríkjunum, sendi fyrir mistök Fireball sem ætlaður var innlendum markaði en ekki evrópskum.
Fireball fyrir bandaríkjamarkað inniheldur 5,8 grömm af propylene glycol í hverjum líter en evrópskar reglur heimila 1 gr. per líter.
Þótt öll eðlileg notkun vörunnar er fullkomlega hættulaus hefur verið ákveðið að innkalla vöruna af markaði þar sem hún uppfyllir ekki EU reglur sem innleiddar hafa verið á Íslandi.
Haugen-Gruppen ehf. hvetur viðskiptavini sem hafi umrædda vörutegund undir höndum að skila vörunni til næstu Vínbúðar þar sem viðskiptavinir geta fengið vöruna endurgreidda.
Ástæða innköllunar: Of hátt gildi af propylene glycol, 5,8 gr. per líter.
Vöruheiti: Fireball kanilviskí
Framleiðandi: Sazerac Company, Inc.
Innflytjandi: Haugen-Gruppen ehf, Skútuvogi 1F, 104 Reykjavíl
Dreifing: Vínbúðir ÁTVR
Haugen-Gruppen ehf.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Markaðurinn6 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Markaðurinn3 dagar síðanSparaðu með júlítilboðum Nathan
-
Markaðurinn2 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu



