Vertu memm

Michelin gestakokkur á Tapasbarnum

04sep(sep 4)18:0007(sep 7)23:00Michelin gestakokkur á TapasbarnumÞessum viðburði er lokið

Upplýsingar um viðburð

Michelin kokkurinn Oscar De Matos er gestakokkur á Tapasbarnum þessa dagana, en herlegheitin hefjast í kvöld miðvikudaginn 4. september og stendur yfir til laugardagsins 7. september.

Flottur 7 rétta seðil að hætti Oscars verður í boði á 10.900 kr. á mann eða með vínpakka á 21.800 kr.

Matseðillinn

Túnfiskur „toro“ með sobrasada, harissa og appelsínu

Hörpuskel með kolrabhi dashi, guanciale shiso-laufum og ólífuolíu

Lúða með gerjuðum apríkósum og apríkósu-kosho með fíkjuolíu og kavíar

Lynghæna með guanciale, kjúklingaseyði, kirsuberjasteinaolíu og gul plómutartar

Grillaður humar með möndlum, kavíar og chorizo beurre blanc

Dádýralund með kínakáli, sveppum og xo-sósu

Kardimommuís með oolong froðu, berjacompote og pipar

Oscar de Matos er einn af frumkvöðlum matarsenunnar í Lucerne, en hann er uppalin á Spáni og í Portúgal.  Þegar hann var 17 ára fékk hann tækifæri til að læra á hinum goðsagnakennda veitingastað “El Bulli”.

Matreiðsla hans er litrík blanda af uppvaxtarárum hans á Spáni og áhrifum af ferðalögum hans á austari slóðir.  Hann hefur starfað í Swiss í yfir 20 ár og árið 2018 opnaði hann sinn eigin veitingastað, ásamt Nadine Baumgartner, og fékk bæði Michelin stjörnu og viðurkenningu GaultMillau, eins virtasta matartímariti heims.

Eftir 5 ár ákváðu Oscar og Nadine að vinda kvæði sínu í kross, ferðast og taka þátt í pop up viðburðum.

Þau vinna nú að opnun nýs og spennandi veitingastaðs í Zuric.

Bókaðu borð á Dineout með því að smella hér.

Myndir: aðsendar

Meira

Tími

04.09.2024 18:00 - 07.09.2024 23:00(GMT+00:00)