Vertu memm

Hótelsýning Bako Ísberg verður haldin 30. og 31. mars

30mar(mar 30)13:0031(mar 31)18:00Hótelsýning Bako Ísberg verður haldin 30. og 31. marsÞessum viðburði er lokið

Hótelsýning Bako Ísberg verður haldin 30. og 31. mars næstkomandi

Upplýsingar um viðburð

Bako Ísberg heldur stórglæsilega hótelsýningu 30. og 31. mars næstkomandi í húsakynnum fyrirtækisins Höfðabakka 9.

Á sýningunni verður allt það nýjasta kynnt fyrir hótel, veitingastaði hótela, hótel bari sem og gistiheimili og útleiguíbúðir.

Bako Ísberg býður upp á mikið úrval af hótelvörum bæði fyrir hótelherbergi, morgunverðahlaðborð, eldhús og veitingastaði allt frá töskurekkum og hárblásurum upp í gufusteikingarofna og innréttingar

Bako Ísberg hefur sinnt stóreldhúsum, veitingastöðum og börum um árabil og hefur umboð fyrir mörg af vinsælustu vörumerkjum landsins á borð við Rational gufusteikingarofna, Steelite borðbúnað, Villeroy & Boch, Zwiesel, WMF, La Sommeliere, Pintinox, Arcos, Tamahagane, Bar Professional svo fátt eitt sé nefnt.

Á sýningunni verða léttar veitingar og vínkynningar frá Innnes, Vínnes, Globus, Reykjavik Brewery og Himbrimi. Fredrik frá Rational verður á staðnum og fer yfir allt það nýjasta frá Rational, en fyrirtækið er með stærstu markaðshlutdeild gufusteikingarofna í heimi. Einnig verður hið eina sanna fyrirmyndarhlaðborð frumsýnt.

Sýningin hefst klukkan 13.00 báða dagana og stendur til 18.00.

Starfsfólk Bako Ísberg býður ykkur hjartanlega velkomin á sýninguna

Allir velkomnir.

Facebook viðburður hér.

Nánar um sýninguna á www.bakoisberg.is

Meira

Tími

30 (Fimmtudagur) 13:00 - 31 (Föstudagur) 18:00(GMT+00:00)