Nú hafa sælkerar þessa lands ástæðu til að gleðjast þar sem að tveir af ástsælustu kokkum landsins hafa ákveðið að leiða saman hesta sína. Þeir Lucas Keller, stofnandi hins rómaða Coocoo’s Nest og Leifur Kolbeinsson á La Primavera ætla í allan vetur að bjóða uppá glænýjan bröns á Hnoss Bistro á jarðhæð Hörpu.
Þessi nýi bröns er í hlaðborðsformi og undir sterkum áhrifum frá gamla Coocoo’s Nest. Brönsinn er opinn alla laugardaga og sunnudaga á milli kl. 11.30 og 14.30 – í allan vetur.
Brunch 6.500 pr. mann
Brunch og Mimosa 6.990 pr. mann
Brunch fyrir 5 – 10 ára 3.250 pr. mann
Brunch fyrir 0 – 5 ára frítt
Kampavíns Mimosa 2.490
Prosecco Mimosa 1.290
Oddbird Mimosa 0% 990
Smellið hér til að panta borð.