Vertu memm

Sverrir Halldórsson

Menam orðinn partur af Selfossi

Birting:

þann

Menam á Selfossi

MENAM, sem þýðir „Við fljótið“, er thailenskur / alþjóðlegur veitingastaður staðsettur á Eyravegi 8 Selfossi gegnt hótel Selfossi.

Menam á SelfossiSaga Menam
Veitingastaðurinn Menam var opnaður 5. desember 1997 af þeim hjónum Sigurði Guðmundssyni og Jaroon Nuenmaroeng. Stuttu síðar opnuðu þau svo gistiheimili á efri hæð hússins. Aðal áhersla hefur verið á thailenska matargerð frá upphafi. Menam hefur á að skipa sama matreiðslumann af thailenskum uppruna frá opnun staðarins.

Þann 30. júlí 1999 keypti Kristín Árnadóttir reksturinn af þeim hjónum og rekur hún Menam í dag ásamt fjölskyldu sinni. Hjá fyrirtækinu starfa um 15 manns að jafnaði á ársgrundvelli. Er það stefna okkar að skapa skemmtilegan og áhugaverðan vinnustað þar sem starfsfólki jafnt sem gestum líður vel að vera.

Menam á SelfossiSaga hússins
Húsið að Eyravegi 8 á sér langa og merkilega sögu. Það var byggt árið 1945 af Þorsteini Guðmundssyni rafvirkjameistara. Húsið hefur gengt ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina, fyrst var þar rekin verslun og rafmagnsverkstæði á neðri hæðinni en íbúðarhúsnæði á þeirri efri. Upp úr árinu 1948 keypti Selfosshreppur húsið og var rekin ýmis starfsemi á vegum hreppsins og síðar bæjarins í húsinu.
Sem dæmi má nefna Hreppsskrifstofur og síðar Bæjarskrifstofur, bókasafn, Hitaveita og rafveita Selfossbæjar, Félagsmálastofnun Selfoss og Samband Sunnlenskra Sveitarfélaga undir það síðasta.

Menam á SelfossiÍ stigagangi upp á aðra hæð hússins þar sem gistiheimilið er, er listaverk málað á vegginn sem er einskonar tákn hússins. Hana málaði Ragnar Engilbertsson árið 1947 er hann var við vinnu við að mála Ölfusárbrú þá um sumarið. Myndin er af Öxarárfossi og er óárituð. Ekki fékkst staðfest fyrr en árið 1999 hver ætti heiðurinn að þessu fallega verki sem prýðir húseignina að Eyravegi 8 á Selfossi.

Menam á SelfossiTil gamans má geta þess að Kristín er dóttir þeirra hjóna sem síðast ráku Tryggvaskála og ólst hún upp þar meira og minna.

En snúum okkur að matnum, en fyrst verð ég að segja að við sváfum vel upp á lofti í gistiheimilinu og svolítið skondið þegar við litum út um gluggann um morguninn var allt hvítt.

Þá er það maturinn:

Fyrst kom

Thom Yong Gum súpa með rækjum

Thom Yong Gum súpa með rækjum

Bragðmikil , en fór þó ekki yfir mörkin

Kjúklingavorrúllur lagaðar á staðnum með tamarid hnetu sósu

Kjúklingavorrúllur lagaðar á staðnum með tamarid hnetu sósu

Vá hvað þær voru góðar stökkar og bragðmiklar

Massaman lambakjötsréttur

Massaman lambakjötsréttur

Ég er ennþá með bragðið i munninum, hef aldrei fengið svona góðan lambarétt á asískum veitingastað

Menam kjúklingaréttur

Menam kjúklingaréttur

Klassískur réttur og smakkaðist prýðilega

Thailensk súpa með hvítlauk og basil

Thailensk súpa með hvítlauk og basil

Þetta er súpa fyrir fullorðna, vel sterk og rífur vel í

Svínakjötsréttur með Cashewhnetum

Svínakjötsréttur með Cashewhnetum

Mjög bragðgóður

Þegar upp var staðið þá var þetta frábær hádegisverður og góð tilbreyting frá hefðbundinni íslenskri eldamennsku, yfirgáfum við staðinn sáttir innra með okkur og í maga.

 

/Sverrir

PS. Hún Kristín er að leita að matreiðslumanni ef einhver hefur áhuga á bæði thailenskri og alþjóðlegri eldamennsku.

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið