Vertu memm

Vínrækt í gróðurhúsum á meðal verkefna á Fjárfestahátíð Norðanáttar á Siglufirði

29marAllan daginnVínrækt í gróðurhúsum á meðal verkefna á Fjárfestahátíð Norðanáttar á SiglufirðiÞessum viðburði er lokið

Norðanátt

Upplýsingar um viðburð

Fjórtán verkefni hafa verið valin til þátttöku á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem fer fram á Siglufirði þann 29. mars næstkomandi.

Þetta er í annað sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en í ár var öllum landshlutum boðið að taka þátt og sóttu þrjátíu verkefni af öllu landinu um á Fjárfestahátíðina.

Kjarnastarfsemi Norðanáttar snýr að svokölluðum FEW-nexus eða matur- orka- vatn og þau verkefni sem taka þátt snerta öll á þessum áherslum með einum eða öðrum hætti. Umsóknir voru metnar út frá því hversu vel verkefnin falla að áherslum hátíðarinnar og fjárfestatækifæri verkefnisins.

Verkefnin sem munu taka þátt á Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023 eru:

  • Bambahús – Úr drasli í nasl (VF)
  • Biopol – Ocean Gold (N)
  • EONE ehf. – e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)
  • Frostþurrkun ehf. – Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum (S)
  • Gefn – Nýsköpun í grænni efnafræði (H)
  • GeoSilica Iceland – GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð (R)
  • GreenBytes – Reducing food waste and increasing profit in restaurants. (H)
  • Gull úr Grasi – Tryggjum fóður og fæðuöryggi (N)
  • IceWind – Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum (H)
  • Kaja Organic – Jurtamjólkur verksmiðja (V)
  • Melta – Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang* sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði (S)
  • Skógarplöntur ehf. – Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt (N)
  • Vínland Vínekran –  Verkefnið snýst um vínrækt í gróðurhúsum, freyðivínsgerð og vínekru upplifun með leiðsögn. Þar verður einnig að finna veitingastað fyrir einstaklinga, hópa og viðburði og vínmeðferða Spa og vínbaði, ásamt afslökunarlaug í upphituðu gróðurhúsi. (S)
  • YGG – Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum (A)

(N) Norðurland / (S) Suðurland / (H) Höfuðborgarsvæði / (VF) Vestfirðir / (V) Vesturland / (R) Reykjanes / (A) Austurland

Í valnefnd sátu Sigurður Markússon, forstöðumaður nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, meðstofnandi og eigandi Iceland Innovation Week, Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri viðskipta- og vöruþróunar hjá Íslenskum Verðbréfum, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóra nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brimi og Kolfinna Kristínardóttir, verkefnastjóri hjá KLAK – Icelandic Startups.

Að verkefninu Norðanátt standa EIMUR, SSNE, SSNV, RATA og Hraðið með stuðningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu.

Mynd: nordanatt.is

Meira

Tími

Allan daginn (Miðvikudagur)(GMT+00:00)