Vertu memm

Majó Pop Up á Húsavík Öl

09jún15:0018:00Majó Pop Up á Húsavík ÖlÞessum viðburði er lokið

Majó Pop Up á Húsavík Öl

Upplýsingar um viðburð

Majó ásamt Húsvíkingnum Benedikt Erni Hjaltasyni kemur á Húsavík Öl að framreiða sushi og annað góðgæti, föstudaginn 9. júní 2023, frá klukkan 15:00. Bruggsmiðjan Húsavík Öl er staðsett við Héðinsbraut 4, Húsavík.

Það verður hægt að kíkja við og panta sér eitthvað sniðugt af sérstökum matseðli fyrir þetta tilefni. Einungis þennan eina dag frá kl. 15 og á meðan matur endist!

Ath. ekki verður hægt að panta mat fyrirfram, heldur bara kíkja við og panta á staðnum.

Majó er fyrirtæki Magnúsar Jóns Magnússonar og Jónínu Bjargar Helgadóttir, sem er starfrækt í Laxdalshúsi á Akureyri. Þar er Jónína, sem er myndlistamaður, með sína vinnustofu og í sölum hússins taka hún og Magnús Jón á móti fólki í mat nokkra daga í mánuði, sem og að fá fólk á sushigerðar-námskeið, taka á móti hópum og afgreiða mat út úr húsi.

Í matargerðinni leggur Magnús áherslu á sushi og aðra rétti með japanskri tengingu. Majó er reglulega með Pop up stað á Ólafsfirði og hefur einnig farið á Dalvík og Siglufjörð í sama tilgangi.

Meira

Tími

(Föstudagur) 15:00 - 18:00(GMT+00:00)